Efsta lið Grill 66-deildar karla, Þór Akureyri, hóf keppni í deildinni á nýju almanaksári eins og liðið lauk síðasta ári, þ.e. á sigri. Þórsarar voru ekki í vandræðum með Fram2 í fyrsta leik ársins í Grill 66-deildinni í Íþróttahöllinni á Akureyri í kvöld, 35:23. Þór var átta mörkum yfir í hálfleik, 21:13. Framarar voru ekki með eins sterkt liði í leiknum í kvöld og stundum áður.
Halldór Örn Tryggvason þjálfari Þórs var á hinn bóginn með sínu vöskustu sveit. Þess sást stað í leiknum þar sem lið hans var með yfirburði frá upphafi til enda.
Þór hefur unnið níu leiki í röð í deildinni. Þeir hafa 18 stig eftir 10 leiki, erum tveimur stigum fyrir ofan Selfoss og fjórum stigum framar en Víkingar. Fram2 eða 12 stig að loknum 11 leikjum.
Næstu leikir í Grill 66-deild karla fara fram á laugardaginn.
Mörk Þórs: Þórður Tandri Ágústsson 8, Brynjar Hólm Grétarsson 7, Oddur Gretarsson 6, Hafþór Már Vignisson 5, Arnór Þorri Þorsteinsson 3, Þormar Sigurðsson 2, Arnviður Bragi Pálmason 1, Aron Hólm Kristjánsson 1, Halldór Kristinn Harðarson 1, Heiðmar Örn Björgvinsson 1.
Varin skot: Kristján Páll Steinsson 5, Steinar Ingi Árnason 2.
Mörk Fram2: Arnþór Sævarsson 8, Agnar Daði Einarsson 5, Alexander Bridde Elíasson 4, Theodór Sigurðsson 2, Kristófer Tómas Gíslason 2, Garpur Birgisson 1, Jón Sigurður Bjarnason 1.
Varin skot: Garpur Druzin Gylfason 10, Breki Hrafn Árnason 3.
Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.