Vonir standa til þess að hægt verði að hefja 13. umferð Olísdeild kvenna í kvöld þegar Íslands- og bikarmeistarar Vals sækja Stjörnuna heim í Hekluhöllinni klukkan 18.30. Til stóð að fyrsti leikurinn færi fram í gærkvöld með viðureign Fram og Selfoss. Vegna ófærðar varð að fresta leiknum.
Einnig á einn leikur að fara fram í Grill 66-deild kvenna í kvöld. Víkingur fær Fram2 í heimsókn í Safamýri. Þrír leikir voru háðir í deildinni í gærkvöld.
Grill 66kvenna: Þriðji sigur FH í röð – Afturelding og Valur unnu örugglega
Leikir kvöldsins
Olísdeild kvenna:
Hekluhöllin: Stjarnan – Valur, kl. 18.30
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.
Grill 66-deild kvenna:
Safamýri: Víkingur – Fram2, kl. 19.30.
Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.