„Takk fyrir Dagur! Ekki hvaða þjálfari sem er hefði tekið frá sæti í landsliðinu fyrir meiddan leikmann,“ sagði Domagoj Duvnjak fyrirliði króatíska landsliðsins eftir að króatíska landsliðið tryggði sér sæti í úrslitum heimsmeistaramótsins í handknattleik karla í gær með sigri á Frökkum, 31:28, í Zagreb Arena. Þetta var síðasti landsleikur Duvnjak á heimavelli á ferlinum.
Ekki hvaða þjálfari sem er
„Takk fyrir að gefa mér sem meiddum leikmanni tækifæri að taka þátt í þessu meðan ómeiddir leikmenn eru utan liðsins. Svona ákvörðun hefði ekki hvaða þjálfari sem er tekið,“ sagði Duvnjak sem er einn virtasti íþróttamaður Króata um þessar mundir, dáður og virtur fyrir drengskap og íþróttamennsku.
Duvnjak, sem er 36 ára gamall og hefur verið fyrirliði landsliðsins um árabil, tilkynnti fyrir HM að hann ætlaði að hætta með landsliðinu eftir HM og binda þar með enda 17 ára feril með landsliðinu.
Borinn niðurbrotinn af leikvelli
Duvnjak tognaði á kálfa snemma leiks við Egypta í riðlakeppni HM. Var hann borinn í tárum af leikvelli og talið að landsleikirnir yrðu ekki fleiri. „Með mikilli hjálp sjúkraþjálfara þá tókst mér að ná þokkalegri heilsu en það var síður en svo sjálfsagt að þjálfarinn tæki frá sæti í liðinu fyrir mig,“ sagði Duvnjak ennfremur.
Kom við sögu gegn Íslandi
Duvnjak kom inn í króatíska liðið fyrir viðureignina við Ísland og hefur síðan leikið fáeinar sóknir með liðinu, nánast á öðrum fæti auk þess að hvetja liðsfélaga sína áfram frá hliðarlínunni. Í gærkvöld upplifði Duvnjak eina stærstu stund á löngum handknattleiksferli. Að fá tækifæri til að taka þátt í henni sem leikmaður og kveðja stuðningsmenn á heimavelli segist hann þakka Degi Sigurðssyni landsliðsþjálfara.
Gott að hafa í hópnum
„Það er gott að hafa Duvnjak í hópnum. Hann er mikilvægur í sínu hlutverki þar,“ sagði Dagur í samtali við handbolta.is spurður um Duvnjak eftir sigur Króata á Íslendingum í milliriðlakeppninni HM fyrir viku.