- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Vantar ekki flugvélar heldur aðgöngumiða – handboltaæði í Króatíu

Króatar ætla að streyma til Óslóar á úrslitaleikinn ef nægur fjöldi aðgöngumiða verður fyrir hendi. Ljósmynd/EPA
- Auglýsing -

Handboltaæði er runnið á Króata eftir að landslið þeirra tryggði sér sæti í úrslitum heimsmeistaramótsins í handknattleik karla eftir 16 ára bið. Talsmaður ferðskrifstofu í Zagreb segir að strax að loknum leiknum í gær hafi hlaðist upp pantanir á ferðum til Óslóar á úrslitaleikinn á sunnudaginn. Ekki hafist undan að svara fyrirspurnum. Hann reiknar með að þúsundir fólks hafi áhuga á ferðum en óvíst að hægt verði að anna eftirspurn. „Áhuginn er hreint brjálæðislegur,“ segir talsmaður ferðaskrifstofu.


„Okkur vantar ekki flugvélar til þess að flytja fólk heldur aðgöngumiða á leikinn. Við vitum ekki fyrir víst hversu margar aðgöngumiða við getum fengið,“ segir talsmaður ferðskrifstofu í samtali við 24sata.hr. Fyrir hádegið var langt komið með að selja í þriðju flugvélina í dagsferð til Óslóar. Ekki langt frá Gardemoen-flugvelli til Bærum hvar úrslitaleikur heimsmeistaramótsins fer fram á sunnudaginn í Unity Arena-keppnishöllinni. Hún rúmar 12 þúsund áhorfendur í sæti.

Dagsferð á úrslitsleikinn með aðgöngumiða á leikinn kostar 800 evrur sem er nærri meðallaunum í Króatíu.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -