- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Framkvæmdastjóri Füchse stýrir ítalska landsliðinu

Ricardo Trillini er hættur þjálfun ítalska landsliðsins eftir átta ár. Hann verður titlaður ráðgjafi landsliðsins í staðinn. Ljósmynd/EPA
- Auglýsing -

Bob Hanning framkvæmdastjóri þýska handknattleiksliðsins Füchse Berlin og fyrrverandi varaforseti þýska handknattleikssambandsins hefur verið ráðinn þjálfari ítalska karlalandsliðsins í handknattleik. Ítalir gerðu það gott á heimsmeistaramótinu á dögunum og höfnuðu í 16. sæti eftir að haf komið á óvart og slegið svartfellska landsliðið út í umspili HM í maí á síðasta ári.

Heldur áfram

Hanning, sem er 56 ára gamall, verður áfram framkvæmdastjóri Füchse Berlin enda hefur hann verið hugmyndasmiðurinn á bak við félagið svo árum skiptir auk þess að vera einn helsti álitsgjafi um hvaðeina í þýskum handknattleik um langt skeið, jafnvel verið svo áberandi að mörgum hefur þótt nóg um.

Hanning tekur við af Riccardo Trillini sem stýrt hefur landsliði Ítala undanfarin átta ár. Tillini verður áfram viðloðandi landsliðið sem ráðgjafi. Jürgen Prantner, faðir einn landsliðsmanna, heldur starfi sínu sem aðstoðarþjálfari. Sonur Jürgens, Leo, samdi við Berlínar liðið í vikunni.

Þjálfaði síðast Potsdam

Hanning hefur talsverða reynslu af þjálfun. Hann var um skeið aðstoðarþjálfari Heiner Brand þáverandi landsliðsþjálfara auk þess að vera þjálfari yngri landsliða Þýskalands. Hanning hefur í gegnum tíðina þjálfað hjá félagsliðum, síðast var hann þjálfari VfL Potsdam sem vann næst efstu deild þýska handknattleiksins í karlaflokki á síðustu leiktíð. Hanning lét af störfum hjá Potsdam þegar liðið vann sér sæti í efstu deild.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -