- Auglýsing -
Handknattleikskonan Harpa María Friðgeirsdóttir hefur á ný gengið til liðs við Fram. Þetta kemur fram á félagaskiptasíðu á vef HSÍ. Frestur til félagaskipta rennur út á miðnætti.
Harpa María flutti til Danmerkur síðasta sumar vegna náms og hefur síðustu mánuði leikið með TMS Ringsted á Sjálandi. TMS Ringsted á sæti í næst efstu deild danska handknattleiksins.
Fleiri félagaskipti voru skráð hjá HSÍ í dag áður en félagaskiptaglugganum var lokað. Hér fyrir neðan er nokkur þeirra:
- Lúðvík Thorberg B. Arnkelsson til Fram frá Gróttu.
- Hinrik Hugi Heiðarsson til Hauka frá ÍBV – að láni út leiktíðina.
- Þorgils Jón Svölu Baldursson til Vals frá HK Karlskrona.*
- Einar Sverrisson til FH frá Selfossi.*
- Patrekur Þór Guðmundsson Öfjörð til Stjörnunnar frá Selfossi – að láni úr leiktíðina.
- Kamil Pedryc til Zagłębie Lubin frá KA.*
- Felipe Condeixa til Harðar frá Spáni.
- Lubomir Ivanytsia til Harðar frá Póllandi.
- Oliver Rabek til Harðar frá Kúveit.
- Marek Lesansky til Harðar frá Tékklandi.
- Shuto Takenaka til Harðar frá Japan.
- Tugberk Catkin til Tyrklands frá Herði.
- Christos Kederis til Grikklands frá Herði.
- Dorde Colovic til Griklands frá Herði.
*Áður hefur verið sagt frá félagaskiptum Einars, Þorgils Jóns og Pedryc.
Pólverjinn hefur kvatt KA og haldið heim
Þorgils Jón klár í slaginn með Val frá 1. febrúar
Einar tekur fram og skóna og gengur til liðs við FH
- Auglýsing -