Ungverjar eru á góðri leið með að eignast gullkynslóð í handknattleik kvenna. Um helgina varð ungverska kvennalandsliðið Evrópumeistari 19 ára og yngri með því að leggja landslið Rússa með níu marka mun í úrslitaleik, 31:22, í Celje í Slóveníu. Að uppistöðu til er ungverska liðið skipað sömu leikmönnum og unnu Evrópumeistaratitilinn í flokki 17 ára landsliða fyrir tveimur árum.
Ekkert lið stóð því ungverska snúning í Slóveníu undanfarnar vikur. Það bar höfuð og herðar yfir önnur lið og kórónuðu frammistöðu sína með stórsigri í úrslitaleiknum. Þrír leikmenn liðsins voru í mótslok valdir í lið mótsins sem segir margt um yfirburðina.
Ungverska liðið skoraði 215 mörk í sjö leikjum mótsins.
Frakkar hrepptu bronsverðlaun eftir að hafa marið Svía, 30:29, í leiknum um þriðja sætið. Lið sömu þjóða mættust í bronsleiknum á EM 17 ára landsliða fyrir tveimur árum. Þá unnu Svíar með eins marks mun, 20:19.
Lena Grandveau bar uppi franska liðið í gær. Hún skoraði 11 mörk í 15 tilraunum.
Niðurstaða mótsins:
1. Ungverjaland, 2. Rússland, 3. Frakkland, 4. Svíþjóð, 5. Rúmenía, 6. Danmörk, 7. Króatía, 8. Þýskaland, 9. Noregur, 10. Tékkland, 11. Sviss, 12. Slóvakía, 13. Svartfjallaland, 14. Austurríki, 15. Slóvenía, 16. Portúgal (dró sig úr keppni á elleftu stundu þegar kórónuveirusmit kom upp innan landsliðshópsins í æfingabúðum nokkrum dögum áður en haldið var til Slóveníu).
- Dæmdur í fjögurra ára bann vegna lyfjanotkunar
- „Ég er spenntur fyrir þessu verkefni“
- Einar Þorsteinn flytur til Þýskalands í sumar
- Björgvin Páll er í úrvalsliðinu
- Óvíst hvenær Ómar og Gísli mæta út á völlinn