Haukur Þrastarson var markahæstur hjá Dinamo Búkarest í dag ásamt Darko Djukic þegar liðið vann HC Buzău, 30:26, á heimavelli í 17. umferð af 26 í rúmensku úrvalsdeildinni í handknattleik. Leikið var á heimavelli Dinamo sem var aðeins marki yfir í hálfleik, 17:16.
Haukur skoraði sjö mörk í leiknum og þótti leika vel.
Dinamo hefur sem fyrr nokkra yfirburði í rúmensku úrvalsdeildinni með sextán sigurleiki og eitt jafntefli í 17 leikjum.
Potaissa Turda, sem mætti Val og ÍBV í undanúrslitum Evrópubikarkeppninnar 2017 og 2018 er í öðru sæti með 13 sigurleiki, eitt jafntefli og tvö töp. HC Buzău situr í þriðja sæti og hefur sótt í sig veðrið á þessari leiktíð, Minaur Baia Mare og CSM Constanta fylgja fast á eftir.