- Auglýsing -
Martha Hermannsdóttir var á laugardaginn vígð inn í goðsagnarhöll handknattleiksdeildar KA. Hún er um leið fyrsta konan sem hlotnast þessi heiður en áður hafa níu karlmenn verið valdir inn í goðsagnahöll KA.
Martha er leikjahæsti leikmaður í sögu KA/Þórs. Hún var m.a. fyrirliði KA/Þórs þegar liðið varð meistari meistaranna, deildarmeistari, bikarmeistari og Íslandsmeistari keppnistímabilið 2020-2021. Martha lék fjóra A-landsleiki 2018 og 2019.
Handknattleikmennirnir í goðsagnahöll KA:
Alfreð Gíslason.
Arnór Atlason.
Erlingur Kristjánsson.
Guðjón Valur Sigurðsson.
Jóhannes Gunnar Bjarnason.
Martha Hermannsdóttir.
Patrekur Jóhannesson.
Róbert Julian Duranona.
Sverre Andreas Jakobsson.
Valdimar Grímsson.
- Auglýsing -