- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Engar breytingar á milli leikja

Snorri Steinn Guðjónsson fer yfir málin með sínum mönnum í leiknum í Chalkida á miðvikudaginn. Ljósmynd/mediaoxe
- Auglýsing -


Sömu leikmenn skipa íslenska landsliðið í handknattleik gegn Grikkjum í Laugardalshöll klukkan 16 í dag og tóku þátt í fyrri viðureign landsliða þjóðanna í Chalkida í Grikklandi á miðvikudaginn. Íslenska landsliðið vann þá viðureign, 34:25, eftir að hafa verið 10 mörkum yfir í hálfleik, 19:9.

Með sigri í viðureigninni í dag tryggir íslenska landsliðið sér þátttökurétt í lokakeppni EM sem fram fer 15. janúar til 1. febrúar 2026 í Danmörku, Svíþjóð og Noregi. Tveir síðustu leikir íslenska landsliðsins í undankeppninni fara fram í 7. og 11. maí gegn Bosníu ytra og Georgíu í Laugardalshöll.

Uppselt er á viðureignina í Laugardalshöll í dag. Sjónvarpað verður frá leiknum á RÚV. Handbolti.is verður einnig með textalýsingu.


Íslenska landsliðið í dag sem mætir Grikkjum verður skipað eftirtöldum leikmönnum:

Markverðir:
Björgvin Páll Gústavsson, Valur, (282/26).
Ísak Steinsson, Drammen HK (1/0).
Aðrir leikmenn:
Andri Már Rúnarsson, SC DHfK Leipzig (3/1).
Arnór Snær Óskarsson, Kolstad (3/0).
Benedikt Gunnar Óskarsson, Kolstad (4/2).
Einar Þorsteinn Ólafsson, Fredericia HK (20/6).
Elliði Snær Viðarsson, Vfl Gummersbach (59/128).
Haukur Þrastarson, Dinamo Búkarest (42/59).
Janus Daði Smárason, Pick Szeged (95/166).
Kristján Örn Kristjánsson, Donni, Skanderborg AGF (34/67).
Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten Schaffhausen (51/153).
Orri Freyr Þorkelsson, Sporting Lissabon (25/75).
Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kolstad (84/227).
Stiven Tobar Valencia, Benfica (19/20).
Þorsteinn Leó Gunnarsson, FC Porto (14/23).
Ýmir Örn Gíslason, Frisch Auf! Göppingen (101/45).

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -