„Þetta var draumur í dós. Ég hef horft á marga leiki í Höllinni auk þess sem leikmenn og þjálfarar segja að það sé engu líkt að leika hérna. Það sannaðist í dag. Þetta var einn af skemmtilegri leikjum sem ég hef tekið þátt í,“ segir Andri Már Rúnarsson landsliðsmaður í handknattleik í samtali við handbolta.is eftir sigurinn á Grikkjum.
Andri Már var að leika sinn fjórða landsleik en þann fyrsta á heimavelli. Um leið fetaði piltur, sem leikur með Leipzig í Þýskalandi, í fótspor foreldra sinna, Rúnars Sigtryggssonar og Heiðu Erlingsdóttur, sem bæði hafa leikið landsleiki í Laugardalshöll.
Frábær tilfinning
„Tilfinningin er frábær. Það er mikil hvatning fyrir mig til frekari dáða að fá þetta tækifæri. Það hefur verið fiðringur í maganum síðan fyrir leikinn í Grikklandi og alveg extra mikill í dag,“ segir Andri Már.
„Að öðru leyti þá náðum við markmiði okkar sem var að vinna og tryggja okkur inn á EM,“ segir Andri Már Rúnarsson sem er einn af ungum landsliðsmönnum sem er að stíga sín fyrstu skref. Hann skoraði fjögur mörk í fimm skotum.
Lengra viðtal við Andra Má er finna í myndskeiði hér fyrir ofan.