- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Björgvin Páll er í úrvalsliðinu

Björgvin Páll Gústavsson fór á kostum í íslenska markinu gegn Grikkjum í Laugardalshöll á laugardaginn. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -


Björgvin Páll Gústavsson landsliðsmarkvörður er í úrvalsliði 3. og 4. leikdags undankeppni Evrópumóts karla í handknattleik. Handknattleikssamband Evrópu valdi hóp átta leikmanna sem þótti skara fram úr í leikjum undankeppninnar í síðustu viku.


Björgvin Páll kom inn í íslenska landsliðið vegna meiðsla Viktors Gísla Hallgrímssonar rétt áður en haldið var til Grikklands í fyrri viðureignina.


Í síðari leik Íslands og Grikklands í Laugardalshöll á laugardaginn fór Björgvin Páll á kostum. Hann var um 50% hlutfallsmarkvörslu þegar upp var staðið. Grikkir fundu ekki leið framhjá honum fyrr en eftir átta mínútur.

Víst er að Björgvin Páll er ekki amalegum hópi leikmanna í úrvalsliðið 3. og 4 leikdags eins og sjá má hér fyrir neðan.

Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð
Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð
Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -