- Auglýsing -
Kadetten Schaffhausen, liðið sem Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar í Sviss, er komið í undanúrslit í bikarkeppninni þar í landi. Kadetten vann Suhr Aarau, 31:25, í átta liða úrslitum keppninnar í dag en leikið var í Aarau. Kadetten á titil að verja í keppninni frá síðasta tímabili.
Eftir jafnan fyrri hálfleik þá tók topplið úrvalsdeildarinnar öll völd í síðari hálfleik og vann öruggan sigur.
Lið Bern og Zürich eru einnig komin í undanúrslit. Fjórða liðið bætist í hópinn síðar í dag þegar leik Wacker Thun og Pfadi Winterthur verður lokið.
Eins og staðan er þegar þetta er skrifað bendir flest til þess að Pfadi Winterthur verði fjórða liðið í undanúrslitum svissnesku bikarkeppninnar.
- Auglýsing -