Handknattleiksmaðurinn Aðalsteinn Örn Aðalsteinsson hefur framlengt samning sinn við meistaraflokk karla hjá Fjölni til næstu tveggja ára.
Aðalsteinn hefur verið einn af lykilmönnum liðsins og átti frábært síðasta tímabil þar sem hann var valinn handboltamaður ársins hjá Fjölni árið 2025. Aðalsteinn, sem er uppalinn Fjölnismaður, kom aftur til Fjölnis sumarið 2024 eftir tveggja ára veru hjá Stjörnunni og hefur síðan verið einn af máttarstólpum liðsins bæði innan vallar sem utan. Á liðinni leiktíð vakti hann mikla athygli fyrir frammistöðu sína í Grill 66-deildinni þar sem hann varð markakóngur deildarinnar. Samhliða því hefur hann einnig lagt sitt af mörkum til félagsins með því að þjálfa yngri flokka við mjög góðan orðstír.
„Ég er einstaklega stoltur að halda áfram að vera partur af þeirri vegferð og uppbyggingu sem er að eiga sér stað í Fjölni,“ segir Aðalsteinn í tilkynningu Fjölnis.
„Markmið liðsins er skýrt fyrir komandi tímabil þar sem stefnan er sett á að berjast um sæti í efstu deild. Með áframhaldandi framlagi Aðalsteins styrkist liðið enn frekar í þeirri vegferð,“ segir enn fremur í tilkynningu Fjölnis sem lesa má í heild sinni hér.



