- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Afgerandi 16 manna listi í vali lesenda á landsliðhóp fyrir HM

Elvar Örn Jónsson, Ýmir Örn Gíslason, Ómar Ingi Magnússon, Viktor Gísli og Ágúst Elí Björgvinsson fyrir einn af leikjum Íslands á EM í upphafi þessar árs. Mynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -

Síðustu tvo sólarhringa hefur handbolti.is staðið fyrir leik eða könnun með þátttöku lesenda þar sem lesendur hafa getað valið þá 18 leikmenn sem þeir vilja að keppi fyrir hönd Íslands á heimsmeistaramótinu í næsta mánuði. Fyrir stundu var lokað fyrir þátttöku og tóku 889 þátt með því að hver og einn hakaði við nöfn 18 leikmanna af 34 manna lista leikmanna sem Guðmundur Þórður Guðmundsson landsliðsþjálfari karla valdi í nóvember. Er það sá grunnhópur sem hann má velja úr fámennari hóp til þátttöku á HM.

Ómar Ingi vinsælastur

Skemmst er frá því að segja að 11 leikmenn fengu yfir 90% atkvæða hver. Af þeim var Ómar Ingi Magnússonar vinsælastur en 99% svarenda völdu hann í lið sitt , 880 af 889. Þar á eftir kom Viktor Gísli Hallgrímsson með 98,5% og Aron Pálmarsson með 98,3%. Í kjölfarið komu Bjarki Már Elísson, Ýmir Örn Gíslason, Elvar Örn Jónsson og Gísli Þorgeir Kristjánsson með að a.m.k. 96,5% atkvæða.


Sextán leikmenn fengu a.m.k. 60% stuðning. Þeir eru í handahófskenndri röð:
Ágúst Elí Björgvinsson.
Björgvin Páll Gústavsson.
Viktor Gísli Hallgrímsson.
Bjarki Már Elísson.
Aron Pálmarsson.
Elvar Örn Jónsson.
Gísli Þorgeir Kristjánsson.
Janus Daði Smárason.
Kristján Örn Kristjánsson, Donni.
Ómar Ingi Magnússon.
Viggó Kristjánsson.
Sigvaldi Björn Guðjónsson.
Óðinn Þór Ríkharðsson.
Arnar Freyr Arnarsson.
Elliði Snær Viðarsson.
Ýmir Örn Gíslason.

Næstir á eftir

Næstir voru Teitur Örn Einarsson, 58,6%, Elvar Ásgeirsson 57,7% og Stiven Tobar Valencia 55,3%. Þar á eftir Ólafur Andrés Guðmundsson með 43,1% og Daníel Þór Ingason með 37,2%.

Stiven er annar kostur

Stiven er samkvæmt þessari könnun kostur númer tvö í vinstra hornið á eftir Bjarka Má. Hákon Daði varð þriðji í þessa stöðu, 223 stigum á eftir Stiven. Nokkur umræða hefur skapast víða um hver eigi að verða með Bjarka Má í vinstra horninu en fjórði maðurinn í þeirri stöðu á 35 manna listanum er Orri Freyr Þorkelsson.


Eins er talsverður munur á Donna og Teiti Erni, þeim fyrrnefnda í hag, svo munar 62 stigum.

Heildarniðurstaðan:

Nöfn:%
Ómar Ingi Magnússon99,0
Viktor Gísli Hallgrímsson98,5
Aron Pálmarsson98,3
Bjarki Már Elísson97,5
Ýmir Örn Gíslason97,3
Elvar Örn Jónsson96,9
Gísli Þorgeir Kristjánsson96,6
Elliði Snær Viðarsson95,1
Sigvaldi Björn Guðjónsson93,4
Janus Daði Smárason92,1
Björgvin Páll Gústavsson90,0
Viggó Kristjánsson84,8
Arnar Freyr Arnarsson67,3
Kristján Örn Kristjánsson, Donni65,6
Óðinn Þór Ríkharðsson63,0
Ágúst Elí Björgvinsson60,7
Teitur Örn Einarsson58,6
Elvar Ásgeirsson57,7
Stiven Tobar Valencia55,3
Ólafur Andrés Guðmundsson43,1
Daníel Þór Ingason37,2
Hákon Daði Styrmisson30,3
Magnús Óli Magnússon22,3
Arnór Snær Óskarsson17,7
Sveinn Jóhannsson14,5
Einar Þorsteinn Ólafsson13,5
Orri Freyr Þorkelsson12,3
Tjörvi Týr Gíslason8,30
Bjarni Ófeigur Valdimarsson7,00
Daníel Freyr Andrésson6,70
Tryggvi Þórisson6,50
Grétar Ari Guðjónsson4,90
Finnur Ingi Stefánsson4,70
Óskar Ólafsson3,30

Hópurinn tilkynntur á morgun

Guðmundur Þórður tilkynnir klukkan 11 á morgun hvaða leikmenn hann velur til æfinga, undirbúnings og síðar þátttöku á HM.


Vegna athugasemda vill ritstjóri taka fram að hann gerir sér grein fyrir að landslið Íslands er ekki valið með þessu hætti heldur veltir landsliðsþjálfari og aðstoðarmaður hans fyrir sér mörgum atriðum áður en þeir velja landsliðshópinn. Landslið er ekki valið að léttúð.


Handbolti.is þakkar lesendum fyrir þátttökuna og óskar þeim gleðilegrar hátíðar.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -