- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Áfram bætist í hópinn hjá Aftureldingu

- Auglýsing -

Handknattleikskonan Vera Pálsdóttir hefur samið við Aftureldingu um að leika með liði félagsins á næstu leiktíð. Virðast flest vötn falla til Varmár um þessar mundir því Vera er þriðji leikmaðurinn sem gengur til liðs við kvennalið Aftureldingar á örfáum dögum. Hún lék síðast með Fjölni í Grafarvogi en var áður liðsmaður Fylkis og Gróttu.

Í tilkynningu Aftureldingar segir að Vera sé reynslumikil og leikur sem hornamaður. Hún skoraði 44 mörk í 21 leik á síðasta tímabili en það var hennar fyrsta tímabil aftur eftir nokkurra ára hlé.


Eins og áður segir er Vera þriðja konan á fáeinum dögum sem ákveður að kveðja sitt fyrra lið og leika undir merkjum Aftureldingar á næsta vetri. Hinar eru Andrea Ósk Þorkelsdóttir og Mattý Rós Birgisdóttir.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -