- Auglýsing -
- Auglýsing -

Aganefnd skoðar hegðun stuðningsmanna ÍBV

Af einhverjum ástæðum hefur nokkrum stuðningsmönnum ÍBV þótt tilvalið að kasta salernispappírsrúllum inn á leikvelli í kappleikjum. Ljósmynd/J.L.Long
- Auglýsing -

Í mörg horn er að líta hjá aganefnd HSÍ þessa dagana þegar úrslitakeppni Olísdeilda og umspil stendur einna hæst. Meðal erinda sem aganefndin hefur til skoðunar er hegðun stuðningsmanna ÍBV í leik og FH og ÍBV. Ekki kemur fram í hvaða leik en vænta má þess að um sé að ræða einhvern af þeim þremur leikjum sem voru að baki þegar nefndin tók erindið fyrir á fundi þriðjudaginn 30. apríl.

Á fundi aganefndar á þriðjudaginn var afgreiðslu málsins frestað til 7. maí. Í millitíðinni er handknattleiksdeild ÍBV gefið færi til að skila inn athugasemdum með tilvísun til 17. gr. reglugerðar HSÍ um agamál.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -