- Auglýsing -
- Auglýsing -

Anton Gylfi og Jónas dæma á EM í janúar

Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson dæma á EM karla strax á fimmtudag. Mynd/Jóhannes Long
- Auglýsing -

Ekki aðeins verður íslenska karlalandsliðið í eldlínunni á Evrópumeistaramótinu í handknattleik sem fram fer í Ungverjalandi og Slóvakíu í janúar heldur verða dómararnir Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson þar einnig með flautur sínar og spjöld í þremur litum.

Handknattleikssamband Evrópu gaf út í morgun lista með þeim 18 dómarapörum sem dæma leiki keppninnar sem hefst 13. janúar og lýkur á næst síðasta degi þess mánaðar.


Anton og Jónas er í þessum hópi annað Evrópumótið í röð í karlaflokki sem undirstrikar það álit sem þeir njóta á alþjóða vettvangi.


Um verður að ræða sjöunda stórmótið sem Anton Gylfi tekur þátt. Jónas á færri stórmót að baki. Anton dæmdi um árabil með Hlyni Leifssyni en tók upp samstarf með Jónasi fyrir sjö árum þegar Hlynur rifaði seglin.


Dómarapörin 18 sem dæma á EM í Ungverjalandi og Slóvakíu í janúar eru:

Ísland: Jónas Elíasson / Anton Gylfi Pálsson.
Austurríki: Radojko Brkic / Andrei Jusufhodzic.
Króatía: Matija Gubica / Boris Milosevic.
Tékkland: Vaclav Horacek / Jiri Novotny.

Danmörk: Mads Hansen / Jesper Madsen.
Spánn: Andreu Marin / Ignacio Garcia Serradilla.
Þýskaland: Robert Schulze / Tobias Tönnies.
Ungverjaland: Adam Biro / Oliver Kiss.

Litáen: Vaidas Mazeika / Mindaugas Gatelis.
Norður Makedónía: Slave Nikolov / Gjorgji Nachevski.
Svartfjallaland: Ivan Pavicevic / Milos Raznatovic.
Portúgal: Duarte Santos / Ricardo Fonseca.

Rúmenía: Bogdan Nicolae Stark / Romeo Mihai Stefan.
Slóvenía: Bojan Lah / David Sok.
Serbía: Nenad Nikolic / Dusan Stojkovic.
Sviss: Arthur Brunner / Morad Salah.

Slóvakía: Boris Mandak / Mario Rudinsky.
Svíþjóð: Mirza Kurtagic / Mattias Wetterwik.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -