Athygli vekur að Jim Gottfridsson var valinn í sænska landsliðið í handknattleik sem Michael Apelgren valdi í morgun vegna tveggja vináttulandsleikja Svía og Króata í næsta mánuði. Gottfridsson er án félags um þessar mundir eftir að ungverska félagið Pick Szeged sagði skyndilega upp samningi sínum við Svíann á dögunum. Apelgren landsliðsþjálfari Svía er einnig þjálfari Pick Szeged.
„Hann hefur lengi haft veigamikið hlutverk innan landsliðsins fyrir landsliðið,“ segir Apelgren við Aftonbladet í Svíþjóð. „Nú þegar við erum í miðjum kynslóðaskiptum og þurfum á líka leikmönnum að halda sem hafa leitt landsliðið á undanförnum árum,“ segir Apelgren um valið á Gottfridsson sem hann segist vera í góðu persónulegu sambandi við.

Að uppstöðu til er um sama leikmannahóp að ræða hjá Svíum og kom hingað til lands í mars.
Fyrri viðureign Svíþjóðar og Króatíu verður í Kristianstad Arena 13. maí. Síðari leikurinn verður í Varazdin í Króatíu þremur dögum síðar.
Markverðir:
Fabian Norsten, Aalborg Håndbold, 21/0.
Marko Roganovic, Bjerringbro-Silkeborg, 2/0.
Mikael Appelgren, One Veszprém, 113/2.
Aðrir leikmenn:
Hampus Wanne, Høj Håndbold, 127/502.
Leon Halén, IK Sävehof, 0/0.
Max Darj, Füchse Berlin, 142/174.
Felix Möller, Aalborg Håndbold, 47/85.
Oscar Bergendahl, SC Magdeburg, 77/120.
Daniel Pettersson, SC Magdeburg, 111/242.
Sebastian Karlsson, Paris Saint-Germain, 46/127.
Jonathan Carlsbogård, FC Barcelona, 100/190.
Eric Johansson, THW Kiel, 64/190.
Nikola Roganovic, HK Malmö, 16/47.
Ludvig Hallbäck, VfL Gummersbach, 2/1.
Felix Claar, SC Magdeburg, 96/287.
Jim Gottfridsson, 188/552.
Axel Månsson, IFK Kristianstad, 9/15.



