- Auglýsing -
- Auglýsing -

Arnar hefur valið 19 leikmenn fyrir Tyrkjaleikina

Kvennalandsliðið mætir Tyrkjum á Ásvöllum klukkan 16 í dag. Mynd/Mummi Lú
- Auglýsing -

Valdir hafa verið 19 leikmenn til æfinga og þátttöku í tveimur landsleikjum í undankeppni Evrópumóts kvenna í handknattleik gegn Tyrkjum 2. og 6. mars. Hópurinn kemur saman til æfinga undir stjórn Arnars Péturssonar landsliðsþjálfara á föstudaginn og heldur liðið til Tyrklands næsta sunnudag þar sem fyrri leikurinn fer fram í borginni Katamonu á miðvikudaginn 2. mars.


Ragnheiður Júlíusdóttir leikmaður Fram gefur ekki kost á sér í verkefnið af persónulegum ástæðum. Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, HK, er í hópnum en hún lék sína fyrstu landsleiki með B-landsliðinu á æfingamóti í Tékklandi í nóvember. Sömu sögu er að segja um Rakel Söru Elvarsdóttur úr KA/Þór.



Markverðir:
Elín Jóna Þorsteinsdóttir, Ringkøbing Håndbold (35/1)
Hafdís Renötudóttir, Fram (32/1)
Sara Sif Helgadóttir, Valur (3/0)
Aðrir leikmenn:
Andrea Jacobsen, Kristianstad (27/7)
Berglind Þorsteinsdóttir, HK (8/5)
Díana Dögg Magnúsdóttir, BSV Sachsen Zwickau (30/31)
Elísa Elíasdóttir, ÍBV (2/0)
Harpa Valey Gylfadóttir, ÍBV (10/8)
Helena Rut Örvarsdóttir, Stjarnan (47/80)
Hildigunnur Einarsdóttir, Valur (86/96)
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, HK (3/7)
Lovísa Thompson, Valur (25/52)
Rakel Sara Elvarsdóttir, KA/Þór (3/2)
Rut Arnfjörð Jónsdóttir, KA/Þór (104/215)
Sandra Erlingsdóttir, EH Aalborg (8/27)
Sunna Jónsdóttir, ÍBV (63/47)
Thea Imani Sturludóttir, Valur (50/77)
Unnur Ómarsdóttir, KA/Þór (34/32)
Þórey Rósa Stefánsdóttir, Fram (109/319)

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -