Handknattleiksdómararnir Árni Snær Magnússon og Þorvar Bjarmi Harðarson eru komnir með réttindi til að dæma í alþjóðlegri keppni á vegum Handknattleikssambands Evrópu, EHF. Þeir eru þriðja íslenska parið sem er um þessar mundir með réttindi á vegum sambandsins.
Árni Snær Magnússon og Þorvar Bjarmi voru í Drammen í Noregi í lok apríl þar sem þeir ráku smiðshöggið á að afla sér þessara EHF-réttinda sem dómarar, eftir því sem fram kemur í tilkynningu sem handbolta.is barst.
„Þeir stóðust það með sóma, og eru nú komnir með EHF vottun sem Continent Referee Europe,“ segir í tilkynningunni.
Hin tvö pörin sem hafa virk sambærileg réttindi eru Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson og Svavar Ólafur Pétursson og Sigurður Hjörtur Þrastarson.