Arnór Ísak Haddsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild KA og er nú samningsbundinn út tímabilið 2028. Arnór Ísak, sem er 23 ára gamall leikstjórnandi, er uppalinn hjá KA.
Arnór Ísak steig snemma sín fyrstu skref í meistaraflokki KA eftir að hafa verið í sigursælum árgangi í yngri flokka starfi félagsins. Hann hefur nú leikið 153 keppnisleiki fyrir KA í deild, bikar og Evrópu.
„Auk þess að leika með liði KA hefur Arnór einnig verið í lykilhlutverki í þjálfun yngri flokka hjá félaginu þar sem hann er að skila frábæru starfi. Þá er hann einnig mikill félagsmaður og alltaf til í að leggja sitt af mörkum í vinnu í kringum félagið og ómetanlegt fyrir KA að njóta krafta þessa öfluga kappa,“ segir m.a. í tilkynningu KA.


