- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Arnór og félagar hleyptu lífi í rimmuna

- Auglýsing -

Arnór Viðarsson og liðsfélagar í HF Karlskrona halda lífi í einvígi sínu við deildarmeistara IFK Kristianstad í átta liða úrslitum úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Karlskrona vann í Kristianstad Arena, 34: 30, og náði í fyrsta vinning sinn í úrslitakeppninni. IFK er með tvo vinninga en þrjá þarf til þess að komast í undanúrslit.


Arnór skoraði þrjú mörk fyrir HF Karlskrona. Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði einu sinni fyrir IFK.

Birgir Steinn Jónsson skoraði ekki mark þegar IF Sävehof tapaði með eins marks mun fyrir Hammarby, 30: 29, í þriðju viðureign liðanna í átta liða úrslitum. Leikið var í Stokkhólmi. Næsti leikur liðanna fer fram í Partille á fimmtudaginn. Á sama tíma sækir IFK Kristianstad liðsmenn HF Karlskrona heima.

Gunnar Steinn Jónsson er þjálfarateymi Hammarby.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -