- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

FH er komið yfir á ný – Haukar eru með bakið upp við vegg

- Auglýsing -

FH vann sanngjarnan sigur á Haukum í þriðja undanúrslitaleik Hafnarfjarðarliðanna í úrslitakeppni Olísdeildar karla, 27: 23, í Kaplakrika í kvöld. FH hefur þar með tvo vinninga og Haukar einn. Leikmenn Hauka mæta með bakið upp við vegg á heimavöll sinn á föstudaginn þegar liðin kljást fjórða sinni. FH-ingar voru með tveggja marka forskot í hálfleik, 14:12.


FH-ingar byrjuðu leikinn afar vel og voru leikmenn Hauka lengi að ná sér á flug. Það tókst þegar á leið og þeir voru ekki langt á eftir að loknum 30 mínútum.

Haukum tókst að minnka muninn í eitt mark í síðari hálfleik, 18:17. Nær komust þeir ekki. Haukar voru allan tímann að elta.

Daníel Freyr Andrésson markvörður lék stórt hlutverk í sigri FH í kvöld. Ljósmynd/J.L.Long

Eins og í fyrri viðureignum var varnarleikur FH einstaklega góður frá fyrstu til síðustu mínútu. Sóknarleikurinn var síðri en það kom ekki að sök. Þegar Haukar áttu þess kost að jafna leikinn og hleypa spennu í viðureignina á milli 40 og 50 mínútu þá varði Daníel Freyr Andréssson allt hvað af tók, m.a. þrjú opin færi í einni sókn.

Auk Daníels Freys og frábærs varnarleiks þá kom Birkir Benediktsson á óvart með því að fara á kostum í sókninni. Sýndi hann loksins hvað í honum býr.

Haukar áttu í mestu vandræðum í sóknarleiknum allan tímann. Illa gekk að opna vörn FH. Þegar það loksins tókst þá höfðu menn mislagaðar hendur við nýtingu á opnum færum, ekki ósvipað og raun var á í fyrsta leik liðanna í Kaplakrika fyrir viku.

Anton Gylfi Pálsson sýnir Ólafi Ægi Ólafssyni rauða spjaldið. Bryjólfur Snær Brynjólfsson fylgist álengdar með. Ljósmynd/J.L.Long

Ellefu mínútum fyrir leikslok urðu Haukar fyrir áfalli þegar Ólafur Ægir Ólafsson fékk beint rautt spjald er hann slæmdi olnboga í andlit Ómars Darra Sigurgeirssonar.


Mörk FH: Birkir Benediktsson 8, Ómar Darri Sigurgeirsson 5, Jón Bjarni Ólafsson 4, Símon Michael Guðjónsson 4/1, Birgir Már Birgisson 3, Kristófer Máni Jónasson 2/2, Gunnar Kári Bragason 1.
Varin skot: Daníel Freyr Andrésson 13/3, 43,3% – Jón Þórarinn Þorsteinsson 0.

Mörk Hauka: Skarphéðinn Ívar Einarsson 7/4, Freyr Aronsson 6, Birkir Snær Steinsson 2, Sigurður Snær Sigurjónsson 2, Andri Fannar Elísson 1, Darri Aronsson 1, Hergeir Grímsson 1, Ólafur Ægir Ólafsson 1, Össur Haraldsson 1, Þráinn Orri Jónsson 1.
Varin skot: Aron Rafn Eðvarðsson 10/1, 27%.

Tölfræði leiksins hjá HBStatz.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -