- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Fyrstu leikir undanúrslita kvenna í kvöld

- Auglýsing -

Undanúrslit úrslitakeppni Olísdeildar kvenna í handknattleik hefjast í kvöld með tveimur viðureignum, annars vegar í Vestmannaeyjum og hins vegar á Hlíðarenda. Deildarmeistarar Vals og ÍBV mæta til keppni en bæði sátu yfir í fyrstu umferð úrslitakeppninnar sem lauk áður en undirbúningur kvennalandsliðsins hófst fyrir tvær síðustu viðureignir undankeppni Evrópumótsins.


Leikmenn ÍBV og Hauka ríða á vaðið í undanúrslitum þegar flautað verður til leiks klukkan 18 í íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum. ÍBV hafnaði í öðru sæti Olísdeildar kvenna í vetur. Haukar unnu KA/Þór tvisvar í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.

Fram lagði ÍR á sannfærandi hátt í fyrstu umferð úrslitakeppninnar og mætir Val í undanúrslitum. Fyrsta viðureign Reykjavíkurliðanna hefst í N1-höllinni á Hlíðarenda klukkan 19.30.

Vinna þarf þrjá leiki í hvorri rimmu undanúrslita til þess að öðlast rétt til þess að leika til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn. Valur hefur orðið Íslandsmeistari undanfarin þrjú ár.

Báðir leikir verða sendir út á Handboltapassanum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -