Þór Guðmundsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Fjölni til næstu tveggja ára. Samhliða því mun Þór einnig stýra 3. flokki kvenna hjá félaginu. Þór tekur við af Gunnari Val Arasyni sem þjálfað hefur Fjölnisliðið um árabil en lætur nú af störfum.
Þór kemur til Fjölnis með víðtæka reynslu úr þjálfun kvennahandbolta. Hann hefur áður þjálfað meistaraflokk og 3. flokk kvenna hjá Víkingi, auk þess að hafa verið aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá Aftureldingu þar sem hann þjálfaði einnig 3. flokk félagsins. Þjálfaraferill hans hófst hjá Fram þar sem hann starfaði ýmsa yngri flokka.
Eftir tveggja ára hlé frá þjálfun vegna stækkandi fjölskyldu er Þór nú tilbúinn að snúa aftur á hliðarlínuna, segir í tilkynningu frá Fjölni. „Fjölnir er spennandi félag sem hefur staðið sig vel í uppbyggingu undanfarin ár. Eftir að hafa tekið tvö ár í pásu frá þjálfun vegna stækkandi fjölskyldu var það ekki erfið ákvörðun að segja já við þessu verkefni,“ segir Þór. „Það er mikill heiður að fá að vinna með ungum, efnilegum og metnaðarfullum hópi og ég hlakka til að gera mitt besta til að stuðla að áframhaldandi árangri og uppbyggingu,“ er haft eftir Þór í áðurnefndri tilkynningu.
„Þekking og reynsla Þórs mun styrkja starf liðsins og tryggja áframhaldandi uppbyggingu. Við hlökkum til samstarfsins og þeirra jákvæðu áhrifa sem hann mun hafa á liðið,“ segir enn fremur í tilkynningunni.


