Bergischer HC, sem Arnór Þór Gunnarsson fyrrverandi landsliðsmaður þjálfar við annan mann, fékk silfurverðlaun í þýsku bikarkeppninni í handknattleik í dag. Eftir sigur á toppliði þýsku 1. deildarinnar, SC Magdeburg, reyndist Füchse Berlin ofjarl Bergischer HC í úrslitaleiknum í dag. Lokatölur voru 42:33. Staðan í hálfleik var 22:17, Berlínarliðinu í hag.
Nánast fram að hálfleik stóðu leikmenn Bergischer HC í Berlínarliðinu sem varð þýskur meistari fyrir ári. Füchse skoraði tvö síðustu mörk fyrri hálfleiks og var með fimm marka forskot í hálfleik. Sá munur reyndist Bergischer HC erfiður.
Meistarar í annað sinn
Füchse Berlin varð þar með bikarmeistari í annað sinn í sögunni. Áður vann liðið bikarkeppnina 2014 undir stjórn Dags Sigurðssonar.
Bergischer HC var á hinn bóginn að leika í fyrsta sinn til úrslita í bikarkeppninni.
Lasse Bredekjær Andersson skoraði 10 mörk fyrir Füchse Berlin og landi hans Mathias Gidsel níu mörk.
Fynn Hangstein var markahæstur hjá Bergischer HC með sex mörk ásamt Noah Beyer.
Fara heim með skottið milli fótanna
Leikmenn efsta liðs þýsku 1. deildarinnar, SC Magdeburg, fara ekki með góðar minningar frá úrslitahelgi þýsku bikarkeppninnar. Þeir töpuðu fyrir Bergischer HC í undanúrslitum eftir vítakeppni í gær og í dag máttu þeir einnig sætta sig við tap. Leikmenn Lemgo fóru heim með bronsverðlaunin. Þeir lögðu Magdeburg, 35: 31, í dag.
Constain Möstl markvörður Lemgo fór á kostum í leiknum. Þrátt fyrir góða frammistöðu Matej Mandic í marki Magdeburg þá var það frammistaða Austurríkismannsins Möstl sem reið baggamuninn fyrir Lemgo. Hann varði 17 skot, þar af þrjú vítaköst.
Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon skoruðu tvö mörk hvor fyrir Magdeburg. Elvar Örn Jónsson skoraði einu sinni. Matthias Musche var markahæstur með sex mörk og Albin Lagergren var næstur með fimm mörk.
Tim Suton var atkvæðamestur hjá Lemgo með átta mörk. Niels Gerardus Versteijnen og Hendrik Wagner skoruðu fimm sinnum hvor.



