Aron Kristjánsson og liðsmenn hans í landsliði Barein luku keppni á heimsmeistaramótinu í handknattleik í dag. Bareinar unnu Alsírbúa með þriggja marka mun, 29:26, í leiknum um 29. sæti á HM. Leikurinn er einn fjögurra í keppni átta neðstu liða mótsins í svokallaðri forsetakeppni.
Alsíringar voru marki yfir, 18:17, eftir fyrri hálfleik í leiknum við Barein í Poreč í dag. Bareinar voru sterkari í síðari hálfleik, ekki síst hresstist yfir varnarleiknum.
Barein vann tvo leiki á heimsmeistaramótinu en tapaði fimm. Auk sigurleiksins í dag vann Barein stórsigur á Kúbu, 39:26, í riðlakeppni forsetabikarsins. Liðið tapaði fyrir Egyptum, Króötum og naumlega fyrir Argentínu í riðlakeppni á fyrsta stigi HM auk þess að bíða lægri hlut gegn Japan og Bandaríkjunum í riðlakeppni forsetabikarsins.