- Auglýsing -
- Auglýsing -

Aron Rafn er á leiðinni heim

Aron Rafn Eðvarðsson markvörður Bietigheim t.v. Mynd/Bietigheim
- Auglýsing -

Handknattleiksdeild Hauka hefur gert þriggja ára ára samning við Aron Rafn Eðvarðsson um að snúa til baka til félagsins eftir átta ár í atvinnumennsku i Evrópu með einum vetri hjá ÍBV 2017/2018. Greint er frá þessu i tilkynningu sem Haukar sendu frá sér fyrir stundu.


Aron Rafn verður 32 ára á þessu ári og er uppalinn í rauða Haukabúningnum. Hann kemur til liðs við Hauka frá SG BBM Bietigheim í Þýskalandi.

Aron hóf að leika með meistaraflokki Hauka árið 2007 og varð Íslandsmeistari með liðinu 2008, 2009 og 2010. Hann varð bikarmeistari með Haukaliðinu 2010 og 2012, og einnig deildarmeistari með liðinu 2009, 2010, 2012 og 2013.


Aron fór svo út í atvinnumennsku til Svíþjóðar til Eskilstuna Guif sumarið 2013. Eftir tvö ár hjá Guif lá leiðin til Aalborg Håndbold í Danmörku þar sem hann lék í hálft tímabil áður en hann skipti yfir í SG BBM Bietigheim þar sem hann lék í eitt og hálft tímabil. Sumarið 2017 skipti Aron Rafn í ÍBV í eitt tímabili þar sem hann varð Íslanslandsmeistari, deildarmeistari og bikarmeistari vorið 2018. Einnig var hann valinn valinn mikivægasti leikmaður lokaúrslitana það tímabilið.

Sumarið 2018 lá leiðin aftur út til Þýskalands þar sem hann samdi við HSV Hamburg þar sem hann lék í eitt og hálft ár þegar hann skipti yfir til SG BBM Bietigheim á ný þar sem hann klárar sinn samning í sumar.


Aron Rafn hefur leikið með íslenska landsliðinu frá árinu 2012 og hefur hann farið á fimm stórmót með liðinu, síðast á HM í Frakklandi 2017. Hann hefur leikið 84 landsleiki og skorað í þeim 6 mörk.

„Ég er spenntur að koma aftur heim í Hauka eftir átta ára fjarveru. Búið að vera skemmtilegt ferðalag hjá mér og glaður að koma aftur heim á Ásvelli og spila fyrir Hauka,” segir Aron Rafn í tilkynningu frá Haukum.


Aron Kristjánsson þjálfari Hauka fagnar komu Arons í tilkynningunni. „Við erum alltaf stoltir þegar við sendum leikmenn í atvinnumennsku og því er mjög ánægjulegt þegar uppaldir leikmenn snúa aftur til félagsins eftir veruna erlendis. Við erum mjög ánægðir með að endurheimta Aron Rafn, sem er reyndur og góður markmaður. Hann á að geta miðlað af sinni reynslu til yngri leikmanna félagsins og styrkt liðið í titlabaráttunni.“

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -