- Auglýsing -
- Auglýsing -

ÍBV staðfestir alvarleg meiðsli Ásgeirs Snæs

Ásgeir Snær Vignisson t.h. ásamt formanni handknattleiksdeildar ÍBV, Davíð Óskarssyni. Mynd/ÍBV
- Auglýsing -

Ásgeir Snær Vignisson, leikmaður ÍBV, verður að minnsta kosti frá keppni í fjóra til fimm mánuði eftir að hann fór úr axlarlið eftir að hafa lent harkalega í gólfinu eftir hrindingu í viðureign ÍBV og Vals í Vestmannaeyjum á síðasta laugardag. Handbolti.is greindi frá þessu á mánudag. Í morgun staðfesti ÍBV hversu alvarleg meiðsli Ásgeirs Snæs eru.

„Ásgeir gat ekki leikið meira með í leiknum og fór til skoðunar á Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vestmannaeyjum. Í ljós kom að Ásgeir hafði farið úr axlarlið en hann hefur svo farið til nánari skoðunar hjá sérfræðingi.

Það er ljóst að afleiðingarnar eru mjög alvarlegar. Það liggur nú fyrir að Ásgeir þarf að fara í aðgerð vegna þessarra meiðsla og verður frá keppni í a.m.k. 4-5 mánuði. Þetta er mikið áfall fyrir alla, en ekki síst Ásgeir sjálfan sem var kominn á fullt með liðinu eftir að hafa komið til liðs við ÍBV í sumar.

Við óskum Ásgeiri Snæ góðs gengis í vinnunni sem er framundan og við erum sannfærð um að hann komi ennþá sterkari til baka eftir meiðslin,“ segir m.a. í fréttatilkynningu frá Handknattleiksdeild ÍBV.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -