- Auglýsing -
- Auglýsing -

Átta marka sigur hjá U21 árs landsliðinu í Krikanum

Strákarnir í U21 árs landsliðinu hefja leik á HM á morgun. Mynd/HSÍ
- Auglýsing -

U-21 karla lék í dag sinni fyrri vináttulandsleik gegn jafnöldrum sínum frá Færeyjum en bæði lið búa sig af fullum krafti fyrir þátttöku liðsins á HM í Grikklandi og Þýskalandi í sumar. Fór svo í Kaplakrika í kvöld að íslenska liðið hafði betur, 31:23, eftir að hafa verið fjórum mörkum yfir í hálfleik, 15:11.

Færeyska liðið byrjaði vel en um miðjan fyrri hálfleikinn náði íslenska liðið að jafna í fyrsta sinn, 6:6. Það sem eftir lifði leiks var jafnræði með liðunum að undanskyldum síðustu tveimur mínútum fyrri hálfleiks þegar íslenska liðið náði að komast í fjögurra marka forystu, 15:11.

Síðari hálfleikur byrjaði eins og þeim fyrri lauk með góðum leik íslenska liðsins sem jók forskotið hægt og rólega út leikinn.

Mörk Íslands: Þorsteinn Leó Gunnarsson 9, Stefán Orri Arnalds 4, Einar Bragi Aðalsteinsson 3, Tryggvi Garðar Jónsson 3, Andri Finsson 3, Ísak Gústafsson 2, Jóhannes Berg Andrason 2, Ísak Logi Einarsson 1, Kristófer Máni Jónasson 1, Símon Michael Guðjónsson 1 og Róbert Örvarsson 1 mark.
Adam Thorsteinsen varði 8 skot og Brynjar Vignir Sigurjónsson varði 7 skot.

Síðari leikur liðanna fer fram á morgun í Kaplakrika og hefst kl. 16.30. Frítt er inn á leikinn og verður honum streymt á YouTube-rás HSÍ.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -