Í áttunda sinn á öldinni verður hreinn úrslitaleikur um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik karla þegar Valur og FH eigast við í N1-höllinni á Hlíðarenda. Síðast var fimm leikja rimma um titilinn árið 2023 þegar ÍBV og Haukar áttust við. Hér fyrir neðan er léttilega hlaupið yfir fyrri fimm leikja rimmur um Íslandsmeistaratitil karla.
2001: Haukar – KA, 3:2.
Haukar lentu undir, 1:2, eftir tap nyrðra í þriðja leik, 27:18. Næstu tvo leiki unnu Haukar, þar á meðal oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn í KA-heimilinu laugardaginn 5. maí, 30:27.
2002: KA – Valur, 3:2.
KA tapaði tveimur fyrstu leikjunum en sneri þar með vörn í sókn og vann þrjá leiki í röð, þar á meðal oddaleik í Valsheimilinu 10. maí, 24:21.
2010: Haukar – Valur, 3:2.
Annað árið í röð mættust Haukar og Valur í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn. Að þessu sinni reyndust Valsmenn vera seigari undir tönn en árið áður og kom þar af leiðandi til oddaleiks á Ásvöllum sem Haukar unnu, 25:20.
2014: ÍBV – Haukar, 3:2.
Ein af eftirminnilegri úrslitarimmum um Íslandsmeistaratitilinn og það sem markaði komu ÍBV í fremstu röð í karlaflokki. Liðin unnu heimaleiki sína í fjórum fyrstu leikjum. Agnar Smári Jónsson tryggði ÍBV Íslandsmeistaratitilinn í 29:28-sigri í oddaleik á troðfullum Ásvöllum þar sem hver fermetri utan vallar var nýttur fyrir áhorfendur.
2016: Haukar – Afturelding, 3:2.
Rimma liða félaganna var jafnari þetta árið og leikirnir hnífjafnir og spennandi. Afturelding vann tvo leiki á Ásvöllum og Haukar svöruðu um hæl með því að vinna tvo leiki í Mosfellsbæ. Oddaleiknum á Ásvöllum fimmtudaginn 19. maí lauk með þriggja marka sigri Hauka, 34:31, sem ráku af sér heimaleikjadrauginn.
2017: Valur – FH 3:2.
Valsmenn höfnuðu í sjöunda sæti í Olísdeildinni og stóðu og þóttu ekki líklegastir til að vinna titilinn þrátt fyrir sigur í bikarkeppninni og frábæran árangur í Evrópubikarkeppninni. Valur lagði ÍBV í oddaleik í Vestmannaeyjum í átta liða úrslitum og var þar með kominn á sigurbraut. Deildarmeistarar FH lögðu Aftureldingu í undanúrslitum, 3:0, og Valur vann Fram, einnig 3:0. Æsispennandi fimm leikja rimmu um Íslandsmeistaratitilinn lauk með sigri Vals í oddaleik í Kaplakrika sunnudaginn 21. maí, 27:20.
Valur og FH eru tvö sigursælustu félög Íslandsmóts karla í handknattleik. Valsmenn hafa hampað Íslandsbikarnum oftar en aðrir eða í 24 skipti. Valur vann Íslandsmeistaratitilinn síðast árið 2022. FH er næst á eftir með 17 Íslandsmeistaratitla, síðast 2024.
2023: ÍBV – Haukar 3:2.
ÍBV og Haukar léku til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn vorið 2023. ÍBV hafnaði í þriðja sæti deildarkeppninnar en Haukar skriðu inn í áttunda sæti eftir erfiðan vetur. Haukar létu það ekki á sig fá og lögðu deildarmeistara Vals í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í tveimur leikjum á sama tíma og ÍBV lagði Stjörnuna einnig í tveimur viðureignum. Eyjamenn voru komnir á bragðið og lögðu FH-inga, 3:0, í undanúrslitum. Haukar unnu Aftureldingu, 3:1.
ÍBV hóf úrslitarimmuna við Hauka af miklum krafti. Liðið vann tvo fyrstu leikina, 33:27, í Eyjum 20. maí og 29: 26, á Ásvöllum þremur dögum síðar. Leikmenn Hauka voru ekki af baki dottnir. Þeir bitu í skjaldarrendur og unnu örugglega í Eyjum, 34: 28, í þriðja leik og sáu til þess að kampavínið væri áfram geymt í kæli. Annar sigur Hauka á Ásvöllum, 27:24, mánudaginn 29. maí varð til þess að í fyrsta sinn í sex ár var leikinn hreinn úrslitaleikur um Íslandsmeistaratitilinn.
Úrslitaleikurinn í Vestmannaeyjum miðvikudaginn 31. maí var jafn og spennandi. ÍBV, með Rúnar Kárason í aðalhlutverki, vann með tveggja marka mun, 25:23, í troðfullu íþróttahúsi í Vestmannaeyjum á fögru vorkvöldi. ÍBV var marki yfir í hálfleik, 11:10. Rúnar skoraði 10 mörk og var valinn mikilvægasti leikmaður úrslitakeppninnar. Andri Már Rúnarsson var markahæstur hjá Haukum með 8 mörk.



