- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Barcelona öflugra í síðari hálfleik – Füchse stendur vel að vígi – myndskeið

Janus Daði Smárason leikmaður Pick Szeged sækir að vörn Barcelona í fyrri viðureign liðanna. Ljósmynd/EPA
- Auglýsing -


Evrópumeistarar Barcelona sýndu styrkleika sinn í síðari hálfleik í viðureign sinni við ungverska liðið Pick Szeged í Pick-Arena í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handknattleik karla. Eftir að hafa verið marki undir í hálfleik, 10:9, þá lifnaði betur yfir lykilmönnum í síðari hálfleik og þegar upp var staðið munaði þremur mörkum á liðunum, 27:24, í Barcelona í hag.

Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson dæmdu leikinn.


Engin ástæða er til að afskrifa Janus Daða Smárason og samherja í Pick Szeged fyrir síðari leikinn í Barcelona eftir viku. Þeir sýndu það gegn PSG í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar að þeir eru til alls líklegir.

Sænski markvörðurinn Tobias Thulin reyndist Barcelonaliðinu erfiður í fyrri hálfleik með yfir 50% hlutfallsmarkvörslu. Þar á meðal varði Svíinn ungi tvö vítaköst.

Í síðari hálfleik náði Emil Nielsen sér á strik í marki Barcelona auk þess að Dika Mem og Luis Frade voru öflugir í sókninni. Sá fyrrnefndi skoraði 10 mörk í leiknum.

Mario Sostaric var markahæstur hjá Pick Szeged með átta mörk. Janus Daði skoraði eitt mark og er skráður fyrir einni stoðsendingu.

Gidsel fór hamförum

Füchse Berlin er komið með annan fótinn í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu í fyrsta sinn eftir átta marka sigur á Aalborg Håndbold í Berlín í gær, 37:29. Álaborgliðið, sem lék til úrslita í Meistaradeildinni á síðasta ári, átti erfitt uppdráttar í leiknum, ekki síst í vörninni.

Mathias Gidsel sýndi allar sínar bestu hliðar og skoraði 11 mörk fyrir Füchse Berlin auk þess að gefa níu stoðsendingar. Tim Freihöfer var næstur með níu mörk og Færeyingurinn Hákun West Av Teigum skoraði sjö mörk.

Mads Hoxer skorað sjö mörk fyrir Aalborg og var markahæstur. Aleks Vlah skoraði fjögur mörk.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -