- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Benedikt Gunnar átti stórleik

- Auglýsing -

Benedikt Gunnar Óskarsson nýtti kærkomið tækifæri sitt með norska liðinu Kolstad í kvöld og skoraði 10 mörk í níu marka sigri á heimavelli gegn Nærbø, 35: 26, í fyrstu viðureign liðanna í átta liða úrslitum úrslitakeppni úrvalsdeildarinnar. Leikið var í Kolstad Arena. Næsta viðureign liðanna fer fram eftir viku.


Fjögur marka sinna skoraði Benedikt Gunnar af vítalínunni. Hann gaf einnig fjórar stoðsendingar.

Sigvaldi Björn Guðjónsson fyrirliði Kolstad skoraði fjögur mörk og átti tvær stoðsendingar.

Sigurjón Guðmundsson markvörður Kolstad er ekki skráður fyrir vörðu skoti. Það kann að vera rangt því tölfræði úr leikjum norsku úrvalsdeildarinnar er ekki alltaf kórrétt.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -