- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Bessi bætist í hópinn hjá Íslandsmeisturunum

- Auglýsing -

Bessi Teitsson hefur yfirgefið Gróttu og gengið til liðs við Íslandsmeistara Vals í handknattleik. Bessi, sem er vinstri hornamaður, var aðsópsmikill með Gróttu í Grill 66-deildinni á nýliðnu keppnistímabili. Skoraði hann m.a. 72 mörk í 17 leikjum. Auk þess átti Bessi sæti í 19 ára landsliðinu sem hafnaði í fjórða sæti á HM á síðasta ári. Hann er enn fremur í 20 ára landsliðinu sem spreytir sig á Evrópumótinu í sumar.


„Ég er gríðarlega ánægður með að fá Bessa til liðs við félagið. Hann er ungur og mjög efnilegur leikmaður með mikla hæfileika og metnað til að ná langt. Hans eiginleikar munu nýtast vel inn í hópinn okkar fyrir næstu leiktíð. Ég hlakka til samstarfsins á næstu árum,“ segir Ágúst Þór Jóhannsson þjálfari Íslandsmeistara Vals í tilkynningu. Félagaskipti Bessa frá Gróttu til Vals hafa lengi verið í deiglunni.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -