- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Birgir Steinn og félagar í undanúrslit eftir sigur í oddaleik

- Auglýsing -

Birgir Steinn Jónsson og liðsfélagar í IK Sävehof tryggðu sér sæti í undanúrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í kvöld er þeir lögðu Hammarby, 38:33, í oddaleik á heimavelli Hammarby í Stokkhólmi. Eftir tvo tapleiki í röð mættu leikmenn IK Sävehof eins og grenjandi ljón til leiks í Stokkhólmi og unnu sannfærandi sigur.


Birgir Steinn lék vel og skoraði m.a. fimm mörk og geigaði ekki á markskoti.

Sävehof var marki yfir í hálfleik, 21:20, og sótti enn frekar í sig veðrið í síðari hálfleik.

Gunnar Steinn Jónsson er í þjálfarateymi Hammarby-liðsins sem nú er komið í sumarleyfi.

Í undanúrslitum verður lið Malmö andstæðingur IK Sävehof. Fyrsta viðureignin verður í Malmö á sunnudaginn.

Í hinni viðureign undanúrslita eigast við IFK Kristianstad og Alingsås. Einar Bragi Aðalsteinsson er leikmaður IFK Kristianstad.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -