Fátt getur komið í veg fyrir að One Veszprém hafni í efsta sæti ungversku 1. deildarinnar í handknattleik enn eitt árið eftir að liðið vann höfuðandstæðing sinn, OTP Bank-Pick Szeged, á heimavelli í dag með sex marka mun, 30:24. Bjarki Már Elísson, sem er samningslaus í lok leiktíðar, skoraði fimm af mörkum One Veszprém í leiknum.
Janus Daði Smárason skoraði tvö mörk fyrir OTP Bank-Pick Szeged sem var þremur mörkum yfir í hálfleik, 14:11. One Veszprém sneri taflinu við, réði lögum og lofum í síðari hálfleik og vann öruggan sigur.
Þegar fjórar umferðir eru eftir af deildarkeppninni er One Veszprém efst með 44 stig eftir 22 leiki. OTP Bank-Pick Szeged er sjö stigum á eftir í öðru sæti. Líklegt er að liðin mætist í úrslitaleikjum um meistaratitilinn í úrslitakeppni í vor.



