Bjarki Már Elísson var markahæstur leikmanna One Veszprém í dag þegar liðið varð ungverskur bikarmeistari í handknattleik með öruggum sigri á Tatabánya, 34:22, í úrslitaleik í keppnishöllinni í Györ. Bjarki Már lék allan leikinn, jafnt í vörn sem sókn. Hann skoraði átta mörk, þar af tvö úr vítaköstum en brást einu sinni bogalistin í vítakasti.
Þetta er í 32. sinn sem Veszprém vinnur bikarkeppnina, þar af í fimmta skipti undanfarin sex ár.
Ivan Martinovic var næstmarkahæstur með sex mörk. Benedek Éles var markahæstur hjá Tatabánya með fimm mörk. Staðan í hálfleik var 15:10 One Veszprém í hag.
Veszprém vann Pick Szeged í undanúrslitaleik í gær þar sem sigur á annan hvorn veginn var knúinn fram í vítakeppni.
Pick Szeged átti ekki í vandræðum með NEKA í viðureigninni um bronsverðlaunin. Lokatölur 34:26. Janus Daði Smárason kom ekkert við sögu í leiknum.


