- Auglýsing -
- Auglýsing -

Björgvin Páll og Donni eru í landsliðshópnum – einn nýliði

Gunnar Magnússon og Ágúst Þór Jóhannsson. Mynd/Ívar
- Auglýsing -

Sættir virðast hafa náðst á milli Björgvins Páls Gústavssonar markvarðar og Kristjáns Arnar Kristjánssonar, Donna. Að minnsta kosti eru báðir í 17 manna landsliðshópi sem Gunnar Magnússon og Ágúst Þór Jóhannsson starfandi landsliðsþjálfari í handknattleik karla hafa valið til þess að leika við Ísrael og Eistland í undankeppni Evrópumótsins 27. og 30. apríl. Hópurinn var tilkynntur fyrir stundu.


Nokkuð er síðan að Björgvin Páll lýsti því yfir að hann gæfi ekki kost á sér í landsliðið í leikina tvo vegna þess að hann vildi ekki setja landsliðsþjálfarana í þá stöðu að velja á milli hans og Donna eftir skeytasendingar þeirra og ágreinings á opinberum vettvangi.

Báðir vildu höggva á hnútinn og ná sáttum

Einn nýliði er í landsliðshópnum, Þorsteinn Leó Gunnarsson, stórskyttan unga úr Aftureldingu.

Framundan eru tveir síðustu leikir undankeppni EM. Fyrri viðureignin verður í Tel Aviv 27. apríl og sú síðari í Laugardalshöll 30. apríl við landslið Eistlands. Íslenska landsliðið þarf að vinna báða leikina til þess að verða öruggt um efsta sætið í riðlinum.

Tryggðu þér miða á heimleikinn við Eistland.


Markverðir:
Björgvin Páll Gústavsson, Val (254/21).
Viktor Gísli Hallgrímsson, HBC Nantes (45/1).
Aðrir leikmenn:
Arnar Freyr Arnarsson, MT Melsungen (81/91).
Aron Pálmarsson, Aalborg Håndbold (166/638).
Bjarki Már Elísson, Telekom Veszprém (101/348).
Elliði Snær Viðarsson, Vfl Gummersbach (33/51).
Elvar Ásgeirsson, Ribe Esbjerg (17/19).
Elvar Örn Jónsson, MT Melsungen (62/147).
Gísli Þorgeir Kristjánsson, SC Magdeburg (49/110).
Janus Daði Smárason, Kolstad Håndball (68/104).
Kristján Örn Kristjánsson, Pays d’Aix UC (26/45).
Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten Schaffhausen (26/85).
Sigvaldi Björn Guðjónsson Kolstad Håndball (59/158).
Stiven Tobar Valencia, Val (2/2).
Teitur Örn Einarsson, SG Flensburg-Handewitt (33/30).
Ýmir Örn Gíslason, Die Rhein-Neckar Löwen (74/35).
Þorsteinn Leó Gunnarsson, Aftureldingu (0/0).

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -