- Auglýsing -
- Auglýsing -

Efst á baugi

- Auglýsing -

Handbolti.is – sögulok

Að vandlega hugsuðu máli er ákveðið að rekstri handbolti.is verði hætt í dag, mánudaginn 1. júní 2026. Ákvörðunin var tekin með trega enda er kastað glæ vinnu síðustu sex ára. Tap hefur verið á útgáfunni frá upphafi en jafnt og...

Konur – helstu félagaskipti 2026

Eins og undanfarin ár hélt handbolti.is skrá yfir helstu félagaskipti meðal handknattleiksfólks sem greint var frá á síðustu mánuðum og vikum, jafnt innanlands sem utan. Hér fyrir neðan er það sem hæst bar í félagaskiptum á meðal handknattleikskvenna og félög...

Þjálfarar – helstu breytingar 2026

Eins og undanfarin ár hélt handbolti.is skrá yfir helstu breytingar sem hafa orðið eða verða á högum íslenskra handknattleiksþjálfara, jafnt utan lands sem innan, fyrir næsta keppnistímabil, 2026/2027. Hér fyrir neðan eru helstu breytingar meðal þjálfara og staðfestar voru fyrir...
- Auglýsing -

Karlar – helstu félagaskipti 2026

Eins og undanfarin ár hélt handbolti.is skrá yfir helstu félagaskipti meðal handknattleiksfólks sem greint var frá á síðustu mánuðum og vikum, jafnt innanlands sem utan. Hér fyrir neðan er það sem hæst bar í félagaskiptum á meðal handknattleikskarla og félög...

Fyrstu íslensku systkinin sem verða Evrópumeistarar

Systkinin Arnar Freyr Arnarsson og Ásrún Inga Arnarsdóttir eru vafalaust einu íslensku systkinin sem hafa unnið Evrópumeistaratitil í handknattleik með sitt hvoru liðinu og það aðeins með árs millibili. Arnar Freyr vann Evrópudeildina með MT Melsungen í dag. Ásrún...

Arnar og Reynir unnu gullið í Evrópudeildinni

Arnar Freyr Arnarsson og Reynir Þór Stefánsson eru Evrópudeildarmeistarar í handknattleik karla með MT Melsungen eftir sigur á THW Kiel, 24:23, í úrslitaleik í Barclays Arena í Hamborg. Eins nærri má geta er um stóran áfanga að ræða hjá...
- Auglýsing -

Tryggvi Garðar til nýliða norsku úrvalsdeildarinnar

Tryggvi Garðar Jónsson, fyrrverandi leikmaður Vals og Fram, hefur samið við Viking Bergen en liðið leikur í norsku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. Tryggvi Garðar hefur síðasta árið leikið með Alpla Hard í Austurríki en losnaði undan samningi við lok...

Andrea, Díana og Elín eru þýskir meistarar – feta í fótspor Kristbjargar

Íslensku landsliðskonurnar Andrea Jacobsen, Díana Dögg Magnúsdóttir og Elín Rósa Magnúsdóttir unnu í dag þýska meistaratitilinn í handknattleik kvenna með Blomberg-Lippe er liðið lagði Borussia Dortmund í oddaleik um titilinn, 30: 26. Andrea, Díana og Elín feta þar með í...

Naumt tap hjá Donna og félögum í fyrsta úrslitaleiknum

Niklas Landin var hetja Aalborg Håndbold í fyrsta úrslitaleik liðsins við Skanderborg AGF um danska meistaratitilinn í handknattleik. Hann varði vítakast Johan Hansen á síðustu sekúndu og kom þar með í veg fyrir að viðureignin færi í framlengingu. Aalborg...
- Auglýsing -

Hannes gefur ekkert eftir

Línumaðurinn Hannes Grimm hefur framlengt samninginn sinn við handknattleiksdeild Gróttu til ársins 2028. Hann er einn af rótgrónum Gróttumönnum og hefur verið fyrirliði undanfarin ár. Hannes á 216 leiki að baki fyrir Gróttu og hefur skorað í þeim 319...

Lokahóf: Garðar Ingi og Szöke best hjá FH

Lokahóf handknattleiksdeildar FH var haldið með pompi og prakt á Ölhúsinu í Hafnarfirði í gær. Leikmenn, þjálfarar, stjórnarmenn og sjálfboðaliðar fjölmenntu á hófið sem var virkilega vel heppnað. Fjölmörg verðlaun voru veitt, sem og aðrar viðurkenningar. Meistaraflokkur karla:Besti leikmaður: Garðar Ingi...

Molakaffi: Uscins, Reistad, Donni, Andreasson, skiptar skoðanir

Þýski landsliðsmaðurinn Renars Uscins hefur samið við frönsku meistarana Paris Saint-Germain frá og með næstu leiktíð. Uscins, sem er 24 ára gamall, hefur leikið með Hannover-Burgdorf í fjögur ár og á þeim tíma fest sig í sessi sem einn...
- Auglýsing -

Óðinn Þór og félagar brotlentu – réttindalaus þjálfari meistaranna

Óðinn Þór Ríkharðsson og liðsfélagar í Kadetten Schaffhausen brotlentu gegn HC Kriens-Luzern í úrslitaviðureignum um meistaratitilinn í Sviss. Kadetten, sem verið hefur meistari fjögur síðustu ár og vann deildina með fáheyrðum yfirburðum í vetur, tapaði þrisvar sinnum fyrir HC...

Arnar Freyr og Reynir Þór leika til úrslita í Evrópudeildinni

Arnar Freyr Arnarsson og Reynir Þór Stefánsson leika til úrslita með MT Melsungen í Evrópudeild karla í handknattleik á morgun. Þeir tóku þátt í sigri Melsungen í dag á Flensburg í undanúrslitaleik í Barclays Arena í Hamborg, 37:30. Melsungen...

Dagur Árni kominn í KA á nýjan leik

Dagur Árni Heimisson hefur snúið aftur heim í KA að lokinni eins árs veru hjá Val. Frá þessu greinir KA í tilkynningu á samfélagsmiðlum sínum í dag. Það voru stórtíðindi fyrir ári þegar Valur keypti Dag Árna frá KA. Hann...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -