- Auglýsing -
- Auglýsing -

Efst á baugi

- Auglýsing -

Dagskráin: Leikir á Selfoss og í Kaplakrika

Tveir leikir eru ráðgerðir í Grill66-deildum karla og kvenna í handknattleik í kvöld. Viðureign Selfoss U og Vals U sem frestað var í gær vegna veðurs fer vonandi fram í kvöld í Sethöllinni á Selfossi. Í Kaplakrika má eiga von...

Molakaffi: Berta, Andrea, Sandra, Elías, Alexandra, Jakob, Aron, Sveinn, Sveinbjörn, Orri

Berta Rut Harðardóttir skoraði þrjú mörk fyrir Holstebro þegar liðið vann sinn fjórða leik í dönsku 1. deildinni í handknattleik þegar það sótti DHG Odense heim í gær, 32:27. Holstebro féll úr úrvalsdeildinni í vor og virðast leikmenn liðsins...

„Algjörlega frábær leikur hjá stelpunum“

„Algjörlega frábær leikur hjá stelpunum,“ var það fyrsta sem Ágúst Þór Jóhannsson þjálfari Vals sagði þegar handbolti.is sló á þráðinn til hans eftir sjö marka sigur Vals, 31:24, á HC DAC Dunajská Streda í Slóvakíu í kvöld. Sigurinn færir...
- Auglýsing -

Valsliðið flaug áfram í Evrópu – sjö marka sigur

Bikarmeistarar Vals léku við hvern sinn fingur í kvöld í Dunajská í Slóvakíu kvöld og lögðu lið HC DAC Dunajská Streda með sjö marka mun, 31:24, í síðari leik liðanna í Evrópubikarkeppninni í handknattleik kvenna. Jafnt var að loknum...

Framarar höfðu betur í Kórnum

Ungmennalið Fram fagnaði í dag sínum fyrsta sigri í Grill66-deild kvenna á leiktíðinni þegar liðið vann ungmennalið HK örugglega í Kórnum, 34:24, eftir að hafa verið sjö mörkum yfir, 16:9, þegar fyrri hálfleikur var afstaðinn. HK-liðið bíður enn eftir fyrsta...

Þýska 1. deildin: Gísli Þorgeir og Arnar Freyr voru aðsópsmiklir

Íslenskir handknattleiksmenn voru í eldlínunni í þýsku 1. deildinni í handknattleik í dag þegar síðustu leikir sjöundu umferðar fóru fram. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði þrjú mörk og átti sex stoðsendingar í fjögurra marka sigri meistaraliðsins SC Magdeburg á MT Melsungen,...
- Auglýsing -

Myndskeið: Sigvaldi Björn skoraði dramatískt sigurmark

Sigvaldi Björn Guðjónsson tryggði Kolstad í gær dramatískan sigur á Drammen úr vítakasti eftir að leiktíminn var á enda, 30:29, í viðureign liðanna sem fram fór í Drammen. Heimamenn voru með boltann þegar nokkrar sekúndur voru eftir. Reynd var línusending...

Molakaffi: Daníel, Oddur, Tumi, Jóhanna, Aldís, Ásdís, Vilborg, Halldór, Haukur, Harpa, Sunna, Aðalsteinn, Ólafur, Hannes

Daníel Þór Ingason var í miklum ham í gær og skoraði átta mörk í níu skotum fyrir Balingen-Weilstetten þegar liðið vann Dormagen, 27:24, á heimavelli í þýsku 2. deildinni í handknattleik. Oddur Gretarsson, samherji Daníels Þórs, skoraði fjögur mörk,...

KA/Þór er úr leik í Evrópu

KA/Þór er úr leik í Evrópubikarkeppni kvenna í handknattleik eftir 11 marka tap í síðari leiknum við HC Gjorce Petrov frá Skopje í Norður Makedóníu í KA-heimilinu í kvöld, 34:23. Úrslitin réðust strax í fyrri hálfleik. Að honum loknum...
- Auglýsing -

Svekkjandi tap en getum snúið taflinu við

„Þetta var svekkjandi tap í leik sem var nánast í járnum allan tímann,“ sagði Ágúst Þór Jóhannsson þjálfari Vals, við handbolta.is í kvöld eftir að Valur tapaði með þriggja marka mun fyrir Dunajská Streda í fyrri viðureign liðanna í...

Þórsarar sterkari á Dalvík

Þór vann ungmennalið Fram með fimm marka mun, 36:31, í þriðju umferð Grill66-deild karla í handknattleik í kvöld. Leikurinn fór fram á Dalvík vegna þess að Höllin á Akureyri er upptekin vegna árshátíðar. Ekki var annað að sjá en...

Haukar fögnuðu sigri í markaveislu

Haukar nældu í sín fyrstu stig í Olísdeild kvenna í handknattleik með sannfærandi sigri á Selfossi í mikilli markaveislu á Ásvöllum, 39:33. Staðan í hálfleik var 20:15 fyrir heimaliðið sem var með yfirhöndina lengst af í leiknum. Nokkrar sveiflur voru...
- Auglýsing -

Leikjavakt tvö: Ásvellir og Dunajská

Framundan eru tveir hörkuleikir sem hefjast klukkan 18. Annarsvegar viðureign Hauka og Aftureldingar í Olísdeild karla sem fram fer á Ásvöllum og hinsvegar fyrri viðureign Vals og HC DAC Dunajská í fyrstu umferð Evrópubikarkeppni kvenna í handknattleik. Handbolti.is ætlar...

Selfyssingar komust ekki til Ísafjarðar

Ekkert verður af leik Harðar og Selfoss sem fram átti að fara í Olísdeild karla í íþróttahúsinu Torfnesi á Ísafirði klukkan 16. Eftir því sem handbolti.is hefur heyrt komst Selfossliðið ekki með flugi vestur í dag en síðast var...

Leikjavakt eitt: Tvær viðureignir klukkan 16

Tveir leikir hefjast á Íslandsmótinu í handknattleik klukkan 16 í dag. Haukar og Selfoss mætast í Olísdeild kvenna og Þór Akureyri og ungmennalið Fram leika á Dalvík. Til stóð að Hörður og Selfoss reyndu með sér í Olísdeild karla...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -