Guðrún Maryam Rayadh hefur skrifað undir tveggja ára samning við Handknattleiksdeild Víkings. Hún kemur til félagsins frá ÍR.
Guðrún er uppalin hjá HK og lék með Kópavogsliðinu upp í meistaraflokk áður en hún söðlaði um og samdi við ÍR. Hluta...
Signý Harðardóttir hefur skrifað undir nýjan samning við Fjölni. Hún er 18 ára gömul og leikur sem vinstri hornamaður.
„Ég er mjög spennt fyrir komandi tímabili og að halda áfram að leggja mig fram um að gera betur í dag...
Patrekur Guðni Þorbergsson, markvörður HK, hefur skrifað undir nýjan samning við uppeldisfélag sitt. Nýi samningurinn gildir til næstu þriggja ára, til sumarsins 2029.
Patrekur Guðni er 19 ára gamall og hefur leikið með HK alla tíð. Hann hefur æft með...
Þýska félagið HSG Wetzlar heldur áfram að hugsa til framtíðar hjá karlaliði sínu, þar sem Rúnar Sigtryggsson er þjálfari. Spánverjinn Marti Soler gengur til liðs við félagið í sumar frá MT Melsungen.
Soler er 23 ára vinstri hornamaður og sterkur...
Alexandra Líf Arnarsdóttir, fyrirliði Hauka og landsliðskona, hefur skrifað undir nýjan samning við uppeldisfélag sitt. Verður hún því áfram á Ásvöllum næstu árin, þó ekki komi fram í tilkynningu handknattleiksdeildar Hauka hve langur samningurinn er.
Alexandra Líf er 25 ára...
Bryndís Hulda Ómarsdóttir, leikmaður Stjörnunnar, hefur skrifað undir nýjan samning við uppeldisfélagið sem gildir til sumarsins 2029. Hún var á lokahófi handknattleiksdeildar Stjörnunnar fyrr í mánuðinum valin efnilegasti leikmaður liðsins.
Bryndís Hulda er 18 ára gömul og leikur í stöðu...
Portúgalski landsliðsmaðurinn Victor Iturriza hefur ákveðið að flytja á ný til Evrópu eftir eins árs úthald hjá Kuwait SC. Iturriza leikur á næstu leiktíð með Dinamo Búkarest en landi hans og landsliðsþjálfari Portúgal, Paulo Perreira, er þjálfari rúmenska meistaraliðsins.
Erlend...
Íslendingalið SC Magdeburg dróst gegn löndum sínum í Füchse Berlín í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í handknattleik karla. Aalborg Håndbold og FC Barcelona mætast í hinni viðureigninni.
Dregið var í undanúrslitin í höfuðstöðvum Handknattleikssambands Evrópu, EHF, í Vín í Austurríki í...
Ásgeir Örn Hallgrímsson og Andri Sigfússon, þjálfarar U18 ára landsliðs karla, hafa valið þá 16 leikmenn sem koma til með að taka þátt í Evrópumótinu í aldursflokknum í sumar. Mótið fer fram í Serbíu frá 29. júlí til 9....
„Mér líður ótrúlega vel. Þetta var frábært,“ sagði Lovísa Thompson, mikilvægasti leikmaður úrslitakeppninnar, í samtali við Handboltapassann eftir að lið hennar Valur tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í íþróttamiðstöð Vestmanneyja í kvöld.
Valur vann einvígið 3:1 eftir að hafa óvænt tapað stórt...
„Mér líður hörmulega. Ég er ótrúlega svekkt,“ sagði Sandra Erlingsdóttir, leikmaður ÍBV, í samtali við Handboltapassann eftir fjögurra marka tap fyrir Val í fjórða leik liðanna í úrslitum Íslandsmótsins í Vestmannaeyjum í kvöld. Valur tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn og ÍBV...
Elísa Elíasdóttir, Eyjakonan í liði Vals, var að vonum hæstánægð eftir að liðið tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn á heimaslóðum hennar í Vestmannaeyjum í kvöld.
„Tilfinningin er ótrúlega góð. Eins og heyrist er ég gjörsamlega búin að missa röddina. En ég er...
Óhætt er að segja að Anton Rúnarsson hafi fengið draumabyrjun sem þjálfari Íslandsmeistara Vals en hann tók við liðinu fyrir ári. Undir stjórn Antons vann Valur Meistarakeppni HSÍ í upphafi leiktíðar, bikarkeppnina í lok febrúar. Síðla í mars varð...
Lovísa Thompson leikmaður nýkrýndra Íslandsmeistara Vals var valin mikilvægasti leikmaður úrslitakeppni Olísdeildar kvenna sem lauk í Vestmannaeyjum í kvöld með sigri Vals í fjórða úrslitaleiknum við ÍBV.
Lovísa var burðarás Valsliðsins sem varð Íslandsmeistari fjórða árið í röð í kvöld....
Valur tryggði sér í kvöld Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik kvenna með því að leggja ÍBV að velli, 30:26, í fjórða leik liðanna í íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. Valur vann einvígið þar með 3:1.
Valur er Íslandsmeistari í 21. sinn í kvennaflokki. Valskonur fögnuðu...