- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fréttir

- Auglýsing -

Afþakkaði góð boð – fer frá toppliði í næst efstu deild

Danski landsliðsmaðurinn Lasse Andersson hefur tekið ákvörðun um að leika með næst efstu deildarliðinu HØJ í heimalandi sínu á næstu leiktíð. Ákvörðun hans kemur mörgum á óvart þótt það hafi legið fyrir síðan í vetur að Andersson hafi samið...

Serbar skipta á milli sín milljónatugum fyrir sæti á HM

Handknattleikssamband Serbíu hefur ákveðið að leikmenn og þjálfari karlalandsliðsins skipti á milli sín 150 þúsund evrum, jafnvirði ríflega 21 milljónar kr. Eru það verðlaun til hópsins fyrir að tryggja Serbíu þátttökurétt á HM karla á næsta ári. Serbneska landsliðið...

Emelía Ósk verður áfram á Selfossi

Emelía Ósk Aðalsteinsdóttir, sem gekk til liðs við Selfoss í upphafi nýliðinnar leiktíðar, hefur ákveðið að framlengja vist sína í bænum. Þar af leiðandi hefur hefur hefur skrifað undir nýjan samning við handknattleiksdeild Selfoss. Emelía Ósk er átján ára gömul...
- Auglýsing -

Stjarnan hefur samið við danskan markvörð

Danskur markvörður, Sara Schrøder Winde, hefur samið um að verja mark kvennaliðs Stjörnunnar á næsta keppnistímabili og því næsta á eftir. Wine er fædd árið 2005. Hún er uppalin hjá Team Esbjerg en kemur til Stjörnunnar eftir dvöl hjá sænska...

Fer Færeyingurinn í Íslendingaliðið?

Færeyingurinn Óli Mittún, einn eftirsóttasti handboltamaður heims, er orðaður við nýkrýnda Þýskalandsmeistara SC Magdeburg, sem þrír Íslendingar leika með. Fjöldi félaga hefur áhuga á að krækja í hinni tvítuga Óla, sem er að ljúka sínu fyrsta tímabili með GOG í...

Myndskeið: Listaverk Gísla Þorgeirs

Á samfélagsmiðlum Evrópumótsins í handknattleik er mögnuð stoðsending Gísla Þorgeirs Kristjánssonar í leik Íslands gegn Ítalíu á EM 2026 í Svíþjóð í janúar rifjuð upp. Hægt hefur verið á myndefninu þegar Gísli Þorgeir kemur boltanum listilega aftur fyrir sig á...
- Auglýsing -

Forvitnileg staða í Flensburg: „Vissi ekki einu sinni að hann væri með umboðsmann“

Ales Pajovic, þjálfari SG Flensburg-Handewitt, er nú þrálátlega orðaður við þjálfarastarfið hjá RD Slovan Ljubljana í heimalandi sínu Slóveníu. Hann er hins vegar samningsbundinn Flensburg til sumarsins 2027. Talið er að Uros Zorman, núverandi þjálfari Slovan, taki við sem þjálfari...

Framtíð Alfreðs komin á hreint – framlengir til 2028

Þýska handknattleikssambandið hefur ákveðið að kveða niður kjaftasögur í kringum framtíð Alfreðs Gíslasonar sem þjálfara karlalandsliðsins og semja við hann að nýju. Alfreð hefur skrifað undir nýjan samning sem gildir fram yfir Ólympíuleikana í Los Angeles sumarið 2028. Fyrri samningur...

Haukur verðlaunaður með nýjum samningi

Haukur Þrastarson hefur skrifað undir nýjan samning við Rhein-Neckar Löwen sem gildir til næstu tveggja ára. Hann hefur farið á kostum á sínu fyrsta tímabili í þýsku 1. deildinni. Auk þess að vera langsamlega stoðsendingahæstur í þýsku deildinni með 177...
- Auglýsing -

Enn slær Gidsel eigið met

Mathias Gidsel, besti handknattleiksmaður heims undanfarin þrjú ár samkvæmt Alþjóðahandknattleikssambandinu, hefur lagt það í vana sinn að slá markamet og oft sín eigin. Það gerði Gidsel í gærkvöldi þegar hann skoraði sitt 278. mark fyrir Füchse Berlín í þýsku 1....

Egill Oddgeir yfirgefur herbúðir ÍBV

Egill Oddgeir Stefánsson, leikmaður ÍBV, er á förum frá uppeldisfélagi sínu í sumar. Flytur hann frá Vestmannaeyjum og á höfuðborgarsvæðið til þess að hefja nám næsta haust. Egill Oddgeir er 19 ára örvhent skytta sem lék 16 leiki í Olísdeildinni...

Molakaffi: Fisker, Kristinn, Solberg, Green

Danska handknattleikskonan Maria Fisker Stokholm hefur gengið til liðs við Eiðis Bóltafelag í Færeyjum. Stokholm verður leikmaður liðsins og einnig þjálfari. Hún er þrautreynd handknattleikskona og hefur m.a. leikið með danska landsliðinu auk Viborg HK, Randers HK og CSM...
- Auglýsing -

Þóra María verður áfram hjá Gróttu

Þóra María Sigurjónsdóttir hefur framlengt samninginn sinn við handknattleiksdeild Gróttu til ársins 2028. Þóra María hefur leikið lykilhlutverk fyrir Gróttuliðið undanfarin ár og skoraði til að mynda 66 mörk fyrir Gróttu í vetur auk þess að vera hörkuvarnarmaður. Fram...

Góður heimasigur hjá Elmari

Elmar Erlingsson og liðsfélagar í Nordhorn-Lingen lyftu sér upp í fimmta sæti 2. deildar þýska handknattleiksins í kvöld eftir tveggja marka sigur á TV 05/07 Hüttenberg á heimavelli, 35:33. Hüttenberg var tveimur mörkum yfir í hálfleik, 20:18. Elmar skoraði...

Myndskeið: Íslendingatríóið er þýskur meistari

SC Magdeburg varð í kvöld þýskur meistari í handknattleik í fjórða sinn. Liðið tryggði sér meistaratitilinn með eins marks sigri á Flensburg, 31:30, í GETEC Arena í Magdeburg í kvöld. Þrír íslenskir landsliðsmenn leika með liðinu; Elvar Örn Jónsson,...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -