- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Þóra María verður áfram hjá Gróttu

- Auglýsing -

Þóra María Sigurjónsdóttir hefur framlengt samninginn sinn við handknattleiksdeild Gróttu til ársins 2028. Þóra María hefur leikið lykilhlutverk fyrir Gróttuliðið undanfarin ár og skoraði til að mynda 66 mörk fyrir Gróttu í vetur auk þess að vera hörkuvarnarmaður. Fram undan er keppni með Gróttu í Olísdeild kvenna á næstu leiktíð.


Þóra María gekk til liðs við Gróttu fyrir fimm árum að loknum tveimur árum hjá HK.

„Við í þjálfarateyminu erum virkilega ánægðir með að Þóra skuli framlengja við Gróttu en hún er gífurlega mikilvægur leikmaður fyrir liðið. Hún er með mikinn baráttuvilja og góð á báðum endum vallarins. Auk þess er hún mikil fyrirmynd innan sem utan vallar, ” sagði Júlíus Þórir Stefánsson þjálfari Gróttu í tilkynningu.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -