- Auglýsing -
Markvörðurinn öflugi, Petar Jokanovic, verður áfram í herbúðum ÍBV. Félagið tilkynnti í dag að hann hafi skrifað undir nýjan samning sem gildir til næstu tveggja ára. Jokanovic gekk til liðs við ÍBV árið 2019 og er að verða einn af reyndari leikmönnum liðsins.
Auk þess að verða Íslandsmeistari með ÍBV fyrir þremur árum varð Jokanovic bikarmeistari með ÍBV 2020 og hlaut silfurverðlaun í bikarkeppninni 2024 og silfur á Íslandsmótinu vorið 2022.
Jokanovic var með 31% hlutfallsmarkvörslu í Olísdeildinni í vetur samkvæmt tölfræðiveitunni HBStatz.
Auk þess að standa vaktina í marki ÍBV hefur Jokanovic þjálfað yngri flokka félagsins. Hann heldur því áfram.
- Auglýsing -



