- Auglýsing -
Á samfélagsmiðlum Evrópumótsins í handknattleik er mögnuð stoðsending Gísla Þorgeirs Kristjánssonar í leik Íslands gegn Ítalíu á EM 2026 í Svíþjóð í janúar rifjuð upp.
Hægt hefur verið á myndefninu þegar Gísli Þorgeir kemur boltanum listilega aftur fyrir sig á Janus Daða Smárason sem skorar í kjölfarið auðvelt mark.
Yfirskriftin í myndskeiðinu er einfaldlega: „Listaverk.“ Stoðsendinguna glæsilegu hjá Gísla Þorgeiri, sem varð í gærkvöldi Þýskalandsmeistari með SC Magdeburg, má sjá í myndskeiðinu hér fyrir neðan:
- Auglýsing -



