- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Myndskeið: Íslendingatríóið er þýskur meistari

- Auglýsing -

SC Magdeburg varð í kvöld þýskur meistari í handknattleik í fjórða sinn. Liðið tryggði sér meistaratitilinn með eins marks sigri á Flensburg, 31:30, í GETEC Arena í Magdeburg í kvöld. Þrír íslenskir landsliðsmenn leika með liðinu; Elvar Örn Jónsson, Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon. Elvar Örn varð þýskur meistari í fyrsta sinn en þeir Gísli Þorgeir og Ómar Ingi eru meistarar í Þýskalandi í þriðja sinn á ferlinum.

Þrjár umferðir eru eftir í þýsku 1. deildinni en þar sem níu stiga munur er á Magdeburg í efsta sæti og næstu tveimur liðum, Füchse Berlin og Flensburg, er útilokað að tvö síðastnefndu liðin nái Magdeburg að stigum hvernig sem síðustu leikirnir verkast.

Danskt sigurmark

Daninn Magnus Saugstrup skoraði sigurmark Magdeburg í sigurleiknum í kvöld. Eins og nærri má geta braust út gríðarlegur fögnuður er flautað var til leiksloka í GETEC Arena.

Af Íslendingunum er það að segja að Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði sex mörk og gaf tvær stoðsendingar. Selfyssingarnir Elvar Örn og Gísli Þorgeir skoruðu þrisvar sinnum hvor.

Simon Pytlick var markahæstur leikmanna Flensburg með átta mörk.

Arnar Freyr markahæstur

Arnar Freyr Arnarsson skoraði sjö mörk og var markahæstur hjá Melsungen í öruggum sigri liðsins á Leipzig, 33:27, á útivelli. Reynir Þór Stefánsson skoraði þrjú mörk.

Blær Hinriksson skoraði eitt mark fyrir Leipzig en staða liðsins í neðsta sæti versnar með hverjum tapleiknum á eftir öðrum.


Meistarar síðasta árs, Füchse Berlin, náðu aðeins jafntefli á heimavelli við Hannover-Burgdorf, 30:30. Berlínarliðið skoraði aðeins 11 mörk í fyrri hálfleik og var allan síðari hálfleikinn að súpa af því seyðið.

Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari Hannover-Burgdorf.

Staðan í þýsku 1. deildinni:

Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -