- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Mikilvægur sigur hjá Rúnari í fallbaráttu – Teitur Örn öflugur

- Auglýsing -

Liðsmenn Rúnars Sigtryggssonar stigu í kvöld stórt skref í áttina til þess að halda sæti sínu í þýsku 1. deildinni er þeir lögðu HC Erlangen, 29:26, á heimavelli. HSG Wetzlar hefur þar með tyllt sér í 16. sæti deildarinnar með 17 stig þegar tvær umferðir eru eftir. GWD Minden sem steinlá fyrir Gummersbach, 32:22, er í næst neðsta sæti tveimur stigum á eftir. Staða Leipzig á botninum er orðin vonlítil.


Hvorki Andri Már, sonur Rúnars, né Viggó Kristjánsson léku með HC Erlangen í leiknum. Báðir eru þeir á sjúkralista og mun ástandið vera svo slæmt á Viggó að hann þarf að gangast undir aðgerð á hné til að fá bót meina sinna.

HC Erlangen er í fjórða neðsta sæti deildarinnar. Mikið þarf að ganga á til þess að liðið falli.

Sjö marka Selfyssingur

Teitur Örn Einarsson fór mikinn í liði Gummersbach í sigurleiknum á GWD Minden, 32:22, á heimavelli. Teitur Örn skoraði sjö mörk og var markahæsti leikmaður liðsins ásamt annarri örvhentri skyttu, Kay Smits.

Elliði Snær Viðarsson var ekki í leikmannahópi Gummersbach að þessu sinni. Liðið er öruggt um að ná a.m.k. fjórða sæti deildarinnar.


Staðan í þýsku 1. deildinni:

Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -