Karlalið Kolstad mun hefja keppni í norsku úrvalsdeildinni á næsta tímabili með tvö mínus stig. Norska handknattleikssambandið tilkynnti um ákvörðun sína í dag.
Ástæðan fyrir refsingunni er sú að Kolstad hefur brotið gegn skilmálum keppnisleyfis síns í norsku úrvalsdeildinni. Skyldi engan undra að brotin lúta að fjármálum og eigin fé félagsins, en Kolstad hefur átt í miklum fjárhagskröggum á tímabilinu.
Sigvaldi Björn Guðjónsson, Benedikt Gunnar Óskarsson og Sigurjón Guðmundsson eru allir leikmenn Kolstad en Sigvaldi Björn gengur til liðs við Hannover-Burgdorf í Þýskalandi í sumar.
Þá er óvíst hvað Benedikt Gunnar tekur sér fyrir hendur þegar samningur hans við Kolstad rennur út í sumar.
Kolstad er þrátt fyrir erfiðleika á tímabilinu komið í úrslitaeinvígi norsku úrvalsdeildarinnar þar sem liðið mætir Drammen. Fyrsti leikur liðanna fer fram í Þrándheimi á laugardag.



