- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Enn slær Gidsel eigið met

- Auglýsing -

Mathias Gidsel, besti handknattleiksmaður heims undanfarin þrjú ár samkvæmt Alþjóðahandknattleikssambandinu, hefur lagt það í vana sinn að slá markamet og oft sín eigin.

Það gerði Gidsel í gærkvöldi þegar hann skoraði sitt 278. mark fyrir Füchse Berlín í þýsku 1. deildinni. Hvert einasta þeirra hefur verið úr opnum leik.


Gidsel tekur nefnilega ekki vítaköst fyrir Füchse en er nú búinn að slá eigið met yfir flest mörk úr opnum leik á einu tímabili í þýsku deildinni, þriðja tímabilið í röð. Met hans frá síðasta tímabili var 275 mörk og stóð met Gidsel í 263 mörkum á þarsíðasta tímabili.

Hann hafði þá slegið met hins suðurkóreska Kyung-Shin Yoon, sem skoraði alls 324 mörk á einu tímabili fyrir VfL Gummersbach tímabilið 2000/2001, þar af 248 mörk úr opnum leik.

Verður markametið nokkurn tímann slegið?

Markamet Yoon stendur hins vegar enn óhaggað og mun eflaust gera það áfram nema Gidsel fái að fara að taka vítaköst hjá Füchse. Þegar þrír leikir eru eftir í þýsku deildinni þarf Daninn að skora 46 mörk til þess að jafna met Yoons.


Þrátt fyrir að Gidsel sé fátt ómögulegt verður það að teljast óraunhæft að hann skori rúmlega 15 mörk að meðaltali í síðustu þremur leikjunum. Gidsel er með níu mörk að meðaltali í leik í deildinni á tímabilinu.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -